Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Agnar Már Másson skrifar 14. febrúar 2026 19:02 Russ DeLeon hefur keypt allan hlut í Höfða Lodge, sem á að opna í haust. Hótelið átti að opna 2026 en miklar tafir hafa orðið. Aðsend/LinkedIn Breski veðmálajöfurinn Russ DeLeon hefur eignast 100 prósenta hlut í fimm stjörnu lúxushóteli sem er í uppbyggingu á Grenivík eftir að Íslendingar seldu sinn hlut í félaginu. Stefnt er á að hótelið opni dyr sínar í haust en opnun hefur tafist um fjögur ár.
Fyrrverandi skíðakapparnir Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein ákváðu árið 2020 að hefja uppbyggingu á sex þúsund fermetra hóteli lúxushóteli á Þengilhöfða rétt við Grenivík í Eyjafirði, þar sem áhersla væri meðal annars lögð á þyrluskíði. Hótelið hefur enn ekki opnað. Björgvin staðfestir við Vísi að tvímenningarnir hafi hinn 2. febrúar gengið frá sölu á 50,01 prósenta hlut sínum í hótelinu til breska kauphéðinsins James Russell „Russ“ DeLeon. Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein hófu byggingu á lúxushóteli á Þengilhöfða í Eyjafirði. Nú er verkefnið komið í hendur Russ DeLeons. Þeir eiga nú aftur Viking Heliskiing og Scandic Guides í heild sinni.Aðsend DeLeon hefur fram að þessu átt 49,99 prósent í hótelinu en á nú gervallt hótelið. Félagið hyggst senda út tilkynningu þessa efnis. „Við ákváðum að fara aðrar leiðir, og þeir aðrar leiðir,“ segir Björgvin, og vísar þá til DeLeons og hans fólks. „Þannig að við skildum bara í góðu.“ Björgvin segir að þeir Jóhann hafi aftur á móti keypt til baka allan sinn hlut í skíðaferðafyrirtækjunum Viking Heliskiing og Scandic Guides, sem Russel hafði eignast að hluta. Tvímenningarnir ætli nú að einbeita sér áfram að þeim rekstri. Höfði Lodge er farið að taka á sig mynd. Það átti að opna 2022 en framkvæmdum er enn ekki lokið.Aðsend Veðmálakóngur sem átti þegar 49,99 prósent DeLeon varð moldríkur af veðmálasíðunni PartyPoker.com sem hann stofnaði ásamt þáverandi eiginkonu sinni, Ruth Parasol, árið 2001. Árið 2005 rataði hann á lista Forbes yfir 400 ríkustu menn í Bandaríkjunum. Hann á lögheimili á Gíbraltar en hefur bandarískan ríkisborgararétt, þar sem hann nam lögfræði í Bandaríkjunum. Íslendingarnir kynntust Bretanum í þyrluskíðaferð sem DeLeon sótti hjá Viking Heliskiing, samkvæmt því sem fram kom viðtali við tvímenningana í Viðskiptablaðinu 2021. Í dag er DeLeon fjárfestir, einkum á sviði fasteigna og tækni. Hótelið sem um ræðir nefnist Höfði Lodge og átti að opna dyr sínar við sjávarþorpið árið 2022 en framkvæmdir hafa tafist verulega og standa enn yfir. Stöð 2, nú Sýn, fjallaði um uppbygginguna árið 2023. Árið 2024 horfði félagið Höfði Lodge ehf. upp á 6 milljóna króna tap. Félagið er í eigu Höfða Icelandic Adventures, sem hinn sextugi DeLeon á nú allt í gegnum gegnum lúxembúrgíska félagið Illidor s.á.r.l. Finnur varla meiri lúxus Í tilkynningu sem Vísir hefur undir höndum beina Björgvin og Jóhann Haukur þökkum sínum til fólksins hjá Illidor og Höfða. Tekið er fram að hótelið eigi að óbreyttu að opna 2026. Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, sagði við Vísi í dag að hótelið væri nú farið að taka á sig mynd. Framkvæmdir hefðu þó gengið hægt fyrir sig síðasta árið en nú sé aðallega frágangsvinna og innivinna eftir, svo sem tengingar við leiðslur. Svona litu teikningar út.Höfði Lodge Þar eiga að vera 40 herbergi, hvert og eitt allt að 180 fermetrar. Efnameiri túristar eru markhópur hótelsins og auk þyrluskíðaferða átti að vera boðið upp á golfhermi. Hótelið hefur risið fyrir ofan 50 metra háan klettavegg á Þengilhöfða. Framkvæmdirnar hafa því verið umfangsmiklar enda hefur þurft að leggja nýjan veg að hótelinu.
Grýtubakkahreppur Hótel á Íslandi Tengdar fréttir Byggja lúxushótel í Eyjafirði: „Bjartsýnir fyrir framtíð Íslands“ Félagarnir Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein, fyrrverandi landsliðsmenn á skíðum og eigendur Viking Heliskiing og Scandic Guides, hafa ákveðið að hefja byggingu á lúxushóteli rétt við Grenivík í Eyjafirði. 9. nóvember 2020 18:17 Fundu eftirspurn eftir fimm stjörnu lúxus Fimm stjörnu lúxushótel rís nú á Þengilhöfða við Eyjafjörð. Hugmyndin kviknaði í þyrluskíðamennsku á Tröllaskaga fyrir um áratug. 3. janúar 2023 09:03 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Byggja lúxushótel í Eyjafirði: „Bjartsýnir fyrir framtíð Íslands“ Félagarnir Björgvin Björgvinsson og Jóhann Haukur Hafstein, fyrrverandi landsliðsmenn á skíðum og eigendur Viking Heliskiing og Scandic Guides, hafa ákveðið að hefja byggingu á lúxushóteli rétt við Grenivík í Eyjafirði. 9. nóvember 2020 18:17
Fundu eftirspurn eftir fimm stjörnu lúxus Fimm stjörnu lúxushótel rís nú á Þengilhöfða við Eyjafjörð. Hugmyndin kviknaði í þyrluskíðamennsku á Tröllaskaga fyrir um áratug. 3. janúar 2023 09:03