„Við kölluðum það einu sinni sexisma og rasisma“ Atli Ísleifsson skrifar 16. febrúar 2026 08:06 Helgi Hrafn Gunnarsson segist ekki geta samþykkt að það sé í lagi að meiða fólk til hlýðni við skoðanir. Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, segist aldrei geta samþykkt að það sé í lagi að meiða fólk til hlýðni við ákveðnar skoðanir.
Helgi, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, skrifaði fyrir skömmu færslu þar sem hann gagnrýndi slaufunaræðið sem hér gekk yfir fyrir nokkrum árum. Hann segist enn ekki hafa lesið viðbrögðin við því sem hann skrifaði á Facebook, enda sé hann meðvitaður um að mörg skoðanasystkina hans almennt séu ósammála honum þegar kemur að þessu. „Ég var alveg þessarar skoðunar þegar þetta tímabil gekk yfir en það hefði ekkert þýtt að viðra þessa skoðun þá. Þú gerir ekki mikið í miðju snjóflóði annað en að rúlla bara með því. Það má alveg segja að ég hafi sýnt ákveðna meðvirkni á þessu tímabili en ég var líka í grunninn sammála mörgu af því sem fólk var að berjast fyrir. En aðferðirnar voru bara rangar. Það er fullt af fólki mín megin í pólitík sem er á sömu skoðun og ég en þorir bara ekki að segja það af ótta við félagsleg viðbrögð. Ég var það líka lengi og ég hef ekki enn þá lesið „commentin“ við því sem ég skrifaði á Facebook, af því að mig langar ekki að loka á vini mína, þó að við séum ósammála þegar kemur að þessu. Ég veit að margir vina minna eru með aðra skoðun en ég á þessu, en ég get bara ekki samþykkt þá skoðun að það sé réttlætt að meiða fólk til hlýðni við ákveðnar skoðanir. Það er það sem birtist óafvitandi í mörgum af þessum hugmyndum og ég er bara ósammála því,” segir Helgi. Alls ekki í lagi Helgi Hrafn segir að vonandi séum við loksins komin á þann stað að fólk megi tjá þessa tegund af skoðunum án þess að vera óttaslegið við að missa vinnuna eða annað þvíumlíkt. „Svona tímabil líða alltaf hjá, en þetta tímabil var á margan hátt bara alls ekki í lagi. Þetta var ákveðin tegund af ofbeldismenningu, þar sem hópar fólks tóku sig saman og meiddu og skemmdu fyrir þeim sem voru þeim ósammála. Svo fylgdu þessu miklir hetjustælar og kátína yfir því að hafa eyðilagt fyrir einhverjum. Það var svo bara réttlætt með að fólk ætti þetta skilið af því að það væri í forréttindastöðu eða annað slíkt. Það er ekkert sem réttlætir að leggja fólk í rúst og eyðileggja líf þeirra. Fólk deyr úr einelti og þeir sem ekki hafa lent í slíku hafa ekki skilning á því hvað það er alvarlegt. Það er ógeðsleg staða að vera einn og varnarlaus í samfélagi með fólki sem lítur út eins og þú, nema það hatar þig. Það er eitt hvort einhver málsstaður sé góður en svo er allt annar hlutur hvaða aðferðir þú notar til að berjast fyrir málsstaðnum.” Skilgreina hluti út frá hópum en ekki einstaklingum Í þættinum tala Helgi og Sölvi um þá tilhneigingu að skilgreina hluti út frá hópum en ekki einstaklingum og hvernig hægt sé að taka það út í öfgar. Helgi segir að það geti skemmt fyrir málstaðnum ef allt sé sett undir gleraugu þess hvaða þjóðfélagshóp þú tilheyrir. „Það er allt í lagi að greina hluti út frá ákveðnum hópum til þess að skilja samfélagið betur og hvað býr að baki. Eins og til dæmis að yfirgnæfandi meirihluti forstjóra í fyrirtækjum séu hvítir karlmenn á ákveðnum aldri. Það er alveg klárlega „relevant” þegar verið er að greina samfélagið og skilja hvaðan við erum að koma og hvað þurfi mögulega að bæta. En þegar við erum farin að dæma fólk nær eingöngu á grundvelli kyns og kynþáttar þá erum við komin á ranga braut. Við kölluðum það einu sinni bara sexisma og rasisma. Þegar fólk fer of langt í öfgar í þá átt að skilgreina allt á þennan hátt, þá endar það á að skemma það sem í grunninn var góður málstaður. Þetta getur svo oft endað með því að fólk sem raunverulega er að berjast fyrir mannréttindum, lýðræði og betra samfélagi verður sjálft fyrir barðinu á fólki sem tekur málstaðinn í öfgar.” Rangt að útiloka ákveðnar skoðanir Helgi Hrafn segist almennt þeirrar skoðunar að það sé rangt að reyna að útiloka ákveðnar skoðanir eða banna ákveðnu fólki að fá „platform“. Hins vegar lifum við á tímum þar sem þeir sem hafa náð langt í að einfalda skilaboð sín nái stundum auðveldar í gegn, sama hvort þeir segi satt eða ekki. „Þú færð það ekki upp úr mér að ég sé á móti umræðu. Þó að sumar skoðanir séu mjög slæmar er alls ekki endilega rétt að þagga þær, heldur þvert á móti taka rökræðuna. Hins vegar lifum við á tímum þar sem ákveðin valdhyggjuöfl hafa náð inn og það þarf að vera vel undirbúinn til þess að rökræða við „valdhyggjufanta“, af því að þeir hafa ekki mikinn áhuga á vitsmunum og rökstuðningi. Það er mikil vinna að vera það vel undirbúinn að þú getir sigrað rökræður við einhvern sem hefur engan áhuga á sannleikanum. Raunveruleikinn og lífið geta verið flókin fyrirbæri og þess vegna geta verið takmörk fyrir því hvað það er hægt að einfalda sannleikann mikið. Það eru hins vegar engin takmörk fyrir því hvað þú getur einfaldað lygina mikið, þannig að á þann hátt er lygin alltaf með ákveðið forskot.” Hægt er að nálgast viðtalið við Helga Hrafn og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is.
Podcast með Sölva Tryggva Tengdar fréttir Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Hera Gísladóttir, heilsumarkþjálfi og stjörnuspekingur, ólst upp með lítið á milli handanna og þurfti að byrja að vinna fyrir sér ellefu ára gömul í fisk- og humarvinnslu. Hún segir stjörnuspeki hafa breytt lífi sínu og gert henni betur kleift að setja son sinn ekki í box. 26. janúar 2026 10:35 „Á bak við fíkn er alltaf áfallasaga“ Tolli Morthens myndlistarmaður segist ævarandi þakklátur fyrir að vera að uppskera ríkulega eftir áralanga vinnu í sjálfum sér og fyrir samfélagið. 5. janúar 2026 08:10 Segir síðasta ár hafa verið strembið Jóhann Kristófer Stefánsson segir síðastliðið ár hafa verið strembið í lífi sínu og að hann hafi á tímabili verið farinn að ofnota símann sinn til þess að flýja veruleikann. Hann hafi í kjölfarið ákveðið að byrja meðvitað að æfa sig í að ná athygli sinni til baka og draga úr áreiti. 16. desember 2025 10:01 Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Alex Þór Jónsson, betur þekktur sem Lexi Picasso, skaddaðist á mænu þegar hann missti sextíu kílóa lóð á höfuðið. Hann segist hafa notað æfingar til að flýja djöfla sína og nauðgun sem hann varð fyrir í æsku. Hann fór til Kenía í aðgerð við mænuskaða en festist þar í þrjú ár vegna Covid-heimsfaraldursins. 1. desember 2025 13:33 Mest lesið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Sonur Cindy Crawford er látinn Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Sjóðurinn tómur Lífið Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Lífið Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Lífið Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Lífið 50+: Ósjálfráða vinahreinsunin eftir fimmtugt Áskorun Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Lífið Fleiri fréttir Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Sjá meira
Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Hera Gísladóttir, heilsumarkþjálfi og stjörnuspekingur, ólst upp með lítið á milli handanna og þurfti að byrja að vinna fyrir sér ellefu ára gömul í fisk- og humarvinnslu. Hún segir stjörnuspeki hafa breytt lífi sínu og gert henni betur kleift að setja son sinn ekki í box. 26. janúar 2026 10:35
„Á bak við fíkn er alltaf áfallasaga“ Tolli Morthens myndlistarmaður segist ævarandi þakklátur fyrir að vera að uppskera ríkulega eftir áralanga vinnu í sjálfum sér og fyrir samfélagið. 5. janúar 2026 08:10
Segir síðasta ár hafa verið strembið Jóhann Kristófer Stefánsson segir síðastliðið ár hafa verið strembið í lífi sínu og að hann hafi á tímabili verið farinn að ofnota símann sinn til þess að flýja veruleikann. Hann hafi í kjölfarið ákveðið að byrja meðvitað að æfa sig í að ná athygli sinni til baka og draga úr áreiti. 16. desember 2025 10:01
Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Alex Þór Jónsson, betur þekktur sem Lexi Picasso, skaddaðist á mænu þegar hann missti sextíu kílóa lóð á höfuðið. Hann segist hafa notað æfingar til að flýja djöfla sína og nauðgun sem hann varð fyrir í æsku. Hann fór til Kenía í aðgerð við mænuskaða en festist þar í þrjú ár vegna Covid-heimsfaraldursins. 1. desember 2025 13:33