Matvælaöryggi og forvarnir Hanna Lóa Skúladóttir og Guðrún Adolfsdóttir skrifa 16. febrúar 2026 10:32 Virkar forvarnir í stað fjárfrekra neyðarviðbragða Matarsýkingar geta haft dýrkeyptar afleiðingar, einkum fyrir neytendur en ekki síður fyrir starfsfólk og rekstur fyrirtækja. Allt of oft má rekja slík atvik til ónógrar áherslu á forvarnir í matvælakeðjunni. Þetta á jafnt við um frumframleiðslu, vinnslu, verslanir og stóreldhús. Virkar forvarnir eru lykillinn að öruggum matvælum. Með markvissri vinnu á öllum stigum matvælakeðjunnar má draga úr áhættu, tryggja stöðug gæði og styrkja ímynd. Dæmi um virkar forvarnir sem skila árangri: Skilvirk þjálfun og fræðsla um matvælaöryggi Árangursrík þrif með áherslu á að finna „leynistaði“ óhreininda og örvera (gilding þrifa með viðeigandi búnaði) Hitastigsstýring við eldun og kælingu og sannprófun á að hitastigsstýring sé fullnægjandi Hraðgreiningar á örverum í matvælum ef grunur leikur á að þau séu menguð, áður en þau fara á markað Ekki má heldur gleyma mikilvægi samviskusamlegra skráninga til að sýna fram á virkar forvarnir. Þannig geta fyrirtæki einnig sýnt fram á rétta meðhöndlun ef grunur er um ábyrgð vegna matarsýkinga. Skuldbinding stjórnenda Í störfum okkar höfum við séð að skuldbinding stjórnenda matvælafyrirtækja er lykilatriði í að ná árangri. Stjórnendur þurfa að: Sýna gott fordæmi og skapa jákvæða matvælaöryggismenningu Tryggja að starfsfólki sé leiðbeint og því hrósað þegar við á Sjá til þess að tekið sé á vandamálum með fullnægjandi orsakagreiningu svo þau endurtaki sig ekki. Rótin liggur oftar en ekki í mörgum samverkandi atriðum en ekki hjá einum „sökudólgi“ Þótt forvarnir geti verið tímafrekar og kostnaðarsamar skila þær margföldum ávinningi: Skilvirkni í rekstri, jafnari gæðum og auknu matvælaöryggi Ánægðara og stoltara starfsfólki Jákvæðari ímynd og auknu trausti Minni sóun og auknum sparnaði, t.d. vegna innkallana og málaferla Minni kostnaði vegna afleiðinga matarsjúkdóma Ávinningur virkra forvarna er því mikill hvort sem við horfum til bætts rekstrar eða aukinnar verndar fyrir okkur öll, ekki síst okkar viðkvæmustu hópa, svo sem barna, aldraða og þeirra sem eru með skert ónæmiskerfi. Hanna Lóa Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sýnis og Guðrún Adolfsdóttir ráðgjafi og matvælafræðingur hjá Sýni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Halldór 20.06.2026 Halldór „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Sjá meira
Virkar forvarnir í stað fjárfrekra neyðarviðbragða Matarsýkingar geta haft dýrkeyptar afleiðingar, einkum fyrir neytendur en ekki síður fyrir starfsfólk og rekstur fyrirtækja. Allt of oft má rekja slík atvik til ónógrar áherslu á forvarnir í matvælakeðjunni. Þetta á jafnt við um frumframleiðslu, vinnslu, verslanir og stóreldhús. Virkar forvarnir eru lykillinn að öruggum matvælum. Með markvissri vinnu á öllum stigum matvælakeðjunnar má draga úr áhættu, tryggja stöðug gæði og styrkja ímynd. Dæmi um virkar forvarnir sem skila árangri: Skilvirk þjálfun og fræðsla um matvælaöryggi Árangursrík þrif með áherslu á að finna „leynistaði“ óhreininda og örvera (gilding þrifa með viðeigandi búnaði) Hitastigsstýring við eldun og kælingu og sannprófun á að hitastigsstýring sé fullnægjandi Hraðgreiningar á örverum í matvælum ef grunur leikur á að þau séu menguð, áður en þau fara á markað Ekki má heldur gleyma mikilvægi samviskusamlegra skráninga til að sýna fram á virkar forvarnir. Þannig geta fyrirtæki einnig sýnt fram á rétta meðhöndlun ef grunur er um ábyrgð vegna matarsýkinga. Skuldbinding stjórnenda Í störfum okkar höfum við séð að skuldbinding stjórnenda matvælafyrirtækja er lykilatriði í að ná árangri. Stjórnendur þurfa að: Sýna gott fordæmi og skapa jákvæða matvælaöryggismenningu Tryggja að starfsfólki sé leiðbeint og því hrósað þegar við á Sjá til þess að tekið sé á vandamálum með fullnægjandi orsakagreiningu svo þau endurtaki sig ekki. Rótin liggur oftar en ekki í mörgum samverkandi atriðum en ekki hjá einum „sökudólgi“ Þótt forvarnir geti verið tímafrekar og kostnaðarsamar skila þær margföldum ávinningi: Skilvirkni í rekstri, jafnari gæðum og auknu matvælaöryggi Ánægðara og stoltara starfsfólki Jákvæðari ímynd og auknu trausti Minni sóun og auknum sparnaði, t.d. vegna innkallana og málaferla Minni kostnaði vegna afleiðinga matarsjúkdóma Ávinningur virkra forvarna er því mikill hvort sem við horfum til bætts rekstrar eða aukinnar verndar fyrir okkur öll, ekki síst okkar viðkvæmustu hópa, svo sem barna, aldraða og þeirra sem eru með skert ónæmiskerfi. Hanna Lóa Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sýnis og Guðrún Adolfsdóttir ráðgjafi og matvælafræðingur hjá Sýni.
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar