„Við vitum hvað við gerðum við konunga Meistaradeildarinnar“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. febrúar 2026 23:16 Jose Mourinho mætir borubrattur með lærisveina sína í Benfica í einvígið gegn Real Madrid. Jose Mourinho er byrjaður að trekkja sína menn hjá Benfica í gang fyrir slaginn gegn Real Madrid á morgun.
Liðin mætast í umspilseinvígi upp á sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en ástæðan fyrir því að Real Madrid þarf að fara í þetta umspil er tapið gegn Benfica í lokaumferð deildarkeppninnar. Real Madrid er sigursælasta liðið í sögu keppninnar og var á leiðinni beint áfram í sextán liða úrslit, þangað til Benfica vann óvæntan 4-2 sigur í lokaumferðinni. „Þeir eru særðir og særðir konungar eru hættulegir. Við munum mæta í þennan leik með höfuðið, metnaðinn og sjálfstraustið hátt uppi. Við vitum hvað við gerðum við konunga Meistaradeildarinnar“ sagði Mourinho á blaðamannafundi í dag. Benfica þurfti að vinna síðasta leik gegn Real Madrid með allavega tveggja marka mun og í uppbótartíma kom markmaðurinn Anatoliy Trubin til bjargar þegar hann skallaði fjórða markið inn. „Trubin verður ekki stillt upp í sókninni á morgun“ sagði Mourinho sposkur. Fyrri leikurinn fer fram á Luz leikvanginum í Lissabon, heimavelli Benfica, en Mourinho vill ekki meina að hans menn séu í verri stöðu þess vegna. „Ég er vanur svona einvígjum. Ég hef gert þetta alla mína ævi. Fólk heldur að þú þurfir einhver ákveðin úrslit í fyrri leiknum, af einni ástæðu eða annarri. Ég segi að þetta sé ekki búið fyrr en að báðum leikjum loknum.“
Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira