Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Lovísa Arnardóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 17. febrúar 2026 07:41 Haraldur segir að um leið og það komi einhver úrkoma minnki svifryksmengun. Vísir/Egill Líklegt er að svifryksmengun minnki á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi í dag þegar fer að snjóa. Styrkur svifryks hefur mælst langt yfir heilsuverndarmörkum á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Í hádeginu í gær sýndi loftmælistöð á Grensásvegi að styrkur þess nam 178,9 míkrógrömmum á rúmmetra sem er rúmlega þrefalt yfir heilsuverndarmörkum.
Haraldur Ólafsson veðurfræðingur telur að svifryksmengun eigi að minnka næstu daga. Það eigi að snjóa eitthvað á suðvesturhorni landsins seint í dag og um leið og úrkoman komi dragi verulega úr mengun. Rætt var við Harald í kvöldfréttum Sýnar í gær. Haraldur segir veðurfar síðustu vikna ekki endilega óvanalegt. Það þurfi ekki nema þurrk, að vetri og sumri, til að það þyrlist upp ryk á helstu umferðaræðum. „Nú erum við að fara inn í þann tíma árs þar sem úrkoma er einna minnst. Hún er minnst síðla vetrar og á vorin og þá er býsna algengt að fá mikið ryk.“ Hann segir erfitt fyrir almenning að gera nokkuð annað en að halda sig frá helstu umferðaræðum, það sé hægt að rykbinda með efnum og vökva göturnar, það bindi ryk en í frosti þurfi að nota önnur efni. „Maður sér mengunina, það dregur stórlega úr skyggni í þessari mengun. Ef maður horfir meðfram yfirborði jarðar, meðfram götunum, þá sér maður að skyggni er alls ekkert mikið. Við sjáum héðan frá Skeifunni í átt að Ártúnbrekku sjáum við að það er alls ekki mikið skyggni, ef við horfum upp á topp Esjunnar sjáum við mjög vel,“ segir Haraldur og það sé því ljóst að rykið er bara rétt við yfirborð jarðar.
Umhverfismál Veður Loftgæði Færð á vegum Tengdar fréttir Styrkur svifryks áfram hár í borginni Styrkur svifryks hefur mælst hár í loftgæðamælistöðum á höfuðborgarsvæðinu um helgina og í dag. 16. febrúar 2026 14:29 „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Íbúi í Reykjavík segir óboðlegt að gefast upp fyrir mikilli svifryksmengun sem mælst hafi á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Hann kallar eftir viðbrögðum frá þingmönnum og borgarfulltrúum og segir að fólk hljóti að setja spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt. 14. febrúar 2026 14:20 Allt rykbindiefni búið Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi. 13. febrúar 2026 12:01 Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 16. febrúar 2026 13:10 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira
Styrkur svifryks áfram hár í borginni Styrkur svifryks hefur mælst hár í loftgæðamælistöðum á höfuðborgarsvæðinu um helgina og í dag. 16. febrúar 2026 14:29
„Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Íbúi í Reykjavík segir óboðlegt að gefast upp fyrir mikilli svifryksmengun sem mælst hafi á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Hann kallar eftir viðbrögðum frá þingmönnum og borgarfulltrúum og segir að fólk hljóti að setja spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt. 14. febrúar 2026 14:20
Allt rykbindiefni búið Ekkert rykbindiefni er til á landinu og er því ekki hægt að bregðast við mikilli svifryksmengun í borginni. Þau sem eru mjög viðkvæm ættu að íhuga að halda sig inni, segir heilbrigðisfulltrúi. 13. febrúar 2026 12:01
Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Í mikilli svifryksmengun er betra að fara labbandi í vinnuna en keyrandi, að sögn formanns Félags lækna gegn umhverfisvá. Erlendar rannsóknir sýna að tíðni hjartaáfalla og heilablóðfalla aukist þá daga sem mengun er mikil. 16. febrúar 2026 13:10