ESB hefur rannsókn á söluháttum Shein og ólöglegum varningi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. febrúar 2026 11:58 Shein og Temu hafa náð gríðarlegum vinsældum með því að selja vörur á hreint ótrúlegu verði. Komið hefur í ljós að vörurnar eru hins vegar ekki alltaf í samræmi við lög og reglur. Getty Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fyrirskipað rannsókn á kínversku netversluninni Shein. Rannsóknin mun meðal annars miða að því að varpa ljósi á umfang sölu vara sem standast ekki Evrópulög og „ávanabindandi“ viðskiptahætti.
Grunur leikur á um að ólöglegur varningur á borð við vopn og kynlífsdúkkur sem líkjast börnum hafi verið seldar í gegnum síðuna. Þá hafa rannsóknir bent til þess að fjöldi vara innihaldi innihaldsefni sem eru bönnuð í Evrópu. Einnig stendur til að rannsaka „ávanabindandi“ viðskiptamódel Shein, sem er sagt gera neytendur háða þjónustunni með leikjum, verðlaunum og bónuspunktum. Þá mun það verða skoðað hvernig Shein leitar sífellt á neytendur með tilboð og uppástungur. Ráðist var í áþekka rannsókn á Temu árið 2024. „Okkur grunar að kerfið sem Shein byggir á sé ekki til þess gert að koma í veg fyrir sölu ólöglegs varnings,“ hefur Guardian eftir heimildarmanni. „Ólöglegar vörur? Það er ennþá hellingur af þeim til sölu þannig að eitthvað er líklega ekki að virka.“ Yfirvöld í Frakklandi hafa hótað því að banna Shein vegna sölu fyrirtækisins á kynlífsdúkkum sem líkjast börnum. Þá hafa stjórnvöld þar í landi meðal annars farið fram á að fyrirtækið taki upp aldursstýringu til að forða börnum frá því að sjá óviðeigandi vörur.
Neytendur Evrópusambandið Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira