Niðursveiflan á vinnumarkaði sé mjög djúp Tómas Arnar Þorláksson skrifar 18. febrúar 2026 12:06 Unnur Sverrisdóttir er forstjóri vinnumálastofnunar. vísir/einar Reiknað er með að atvinnuleysi mælist yfir fimm prósentum í febrúar. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir skýr merki um töluverða kólnun á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er meira en undanfarin ár og fá störf eru í boði.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu mættu fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á opnum fundi í gær þar sem skýrsla peningastefnunefndar Seðlabankans var til umræðu. Þar kom fram að skýr merki væru um kólnun á vinnumarkaði. Því til stuðnings var bent á nýlega könnun meðal fyrirtækja þar sem kannað var hvort skortur væri á vinnuafli. Seðlabankinn stendur fyrir könnuninni reglulega. Aðeins tíu prósent fyrirtækja svöruðu játandi. Eftir því sem fram kemur í frétt Viðskiptablaðsins hefur hlutfallið aðeins tvisvar mælst jafn lágt. Það er í kjölfar efnahagshrunsins og þegar heimsfaraldur Covid 19 gekk yfir. Djúp sveifla Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir atvinnuleysi mælast hærra en undanfarin ár. „Við finnum fyrir töluverðri kólnun á vinnumarkaði núna. Þetta hefur aukist svona jafnt og þétt núna skráð atvinnuleysi hjá okkur síðustu mánuði hjá okkur. Núna í janúar mældist það 4,9 prósent en var 4,2 prósent fyrir ári síðan og 3,8 árið þar á undan. Þó að þessar árstíðarbundnu sveiflur séu alltaf til staðar á vinnumarkaði þá er þessi mjög djúp.“ Þórarinn sagði á fundinum í gær að hlutfall milli lausra starfa og atvinnulausra væri nú komið niður í hálfan. Það þýði að fyrir hvert laust starf séu tveir atvinnulausir að keppa um það. Fyrir ári hafi tvö störf verið laus fyrir hvern atvinnulausan. Þetta ætti að minnka spennu á vinnumarkaði. Vonandi betri tíð með hækkandi sól Það einkenni þessa sveiflu að fleiri atvinnulausir keppist um sömu störf en oft áður. Úrvalið og fjölbreytni starfa sé jafnframt minna. „Það er bara að fækka. Það fækkar lausum störfum. Það er alveg ljóst. Það er merkjanlegt. Síðasta ársfjórðung. Þá hefur orðið fækkun miðað við árin á undan.“ Töluverður fjöldi leiti til stofnunarinnar eftir aðstoð. „Langtímaatvinnuleysi hefur aðeins aukist á milli ára líka. Við erum að spá 5,1 prósent atvinnuleysi í febrúar en vonandi fer landið að rísa í mars og apríl, þegar að sumarstörfin byrja að detta inn hjá okkur.“
Vinnumarkaður Atvinnurekendur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira