Reykjavíkurmaraþonið eignast systur í Pittsburgh Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. febrúar 2026 16:30 Reykjavíkurmaraþonið verður haldið í 41. sinn í ágúst 2026. Reykjavíkurmaraþonið hefur ákveðið að hefja samstarf við maraþonið í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Hér eftir verða hlaupin tvö kynnt sem systurmaraþon.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur og Íslandsbanka, sem halda Reykjavíkurmaraþonið á hverju ári og í fertugasta sinn í fyrra. Pittsburgh maraþonið fer fram þann 3. maí næstkomandi en Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer að venju fram samhliða menningarnótt eða laugardaginn 22. ágúst. „Grunnurinn að báðum hlaupum snýr að því að leiða gott af sér og stuðla að heilbrigðum lífstíl. Með þessu samstarfi gefst okkur tækifæri til að efla Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á alþjóðlegum vettvangi og bjóða upp á nýja hlaupaupplifun í leiðinni,” segir Hrefna Hlín Sveinbjörnsdóttir, hlaupastýra Reykjavíkurmaraþonsins. Í tilkynningunni segir að Reykjavíkurmaraþonið bjóði hlaupurum einstakt tækifæri til þess að hlaupa í nyrstu höfuðborg heims um götur Reykjavíkur þar sem íbúar og sjálfboðaliðar setja mark sitt á stemninguna. Maraþonið í Pittsburgh býður upp á frábrugðið umhverfi sem býr yfir mikilli sögu og menningu. Hlaupin eiga það helst sameiginlegt hvað varðar stemninguna og menninguna sem hefur myndast í kringum maraþonin en íbúar heilu hverfanna bæði í Reykjavík og Pittsburgh flykkjast út á göturnar til að hvetja og styðja við hlaupara. „Fyrir hlaupara sem elska að ferðast opnar þetta samstarf á möguleikann á ógleymanlegri hlaupaupplifun. Um er að ræða tvö mjög ólík hlaup í tveimur fallegum borgum sem bæði hafa mikinn karakter,” segir Troy Schooley, framkvæmdastjóri Pittsburgh-maraþonsins. „Samstarfið skapar ekki aðeins tengsl í hlaupasamfélaginu heldur vekur einnig athygli á Reykjavík sem framúrskarandi áfangastað fyrir hlaupara,” segir Kristján Bjarki Jónasson, verkefnastjóri hjá Visit Reykjavík sem kemur einnig að samstarfinu.
Reykjavíkurmaraþon Hlaup Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah Fótbolti Fleiri fréttir Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover UFC tapaði 3,7 milljörðum á bardagakvöldinu í Hvíta húsinu Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið Viktor Gísli framlengir við Barcelona FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjá meira