Viktor Gísli fagnaði sigri og sæti í átta liða úrslitunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2026 19:14 Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar eru öryggir í átta liða úrslitin. VÍSIR/VILHELM Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í spænska stórliðinu Barcelona tryggðu sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta eftir sigur í leik tveggja Íslendingaliða.
Barcelona mætti til Ungverjalands og vann öruggan átta marka útisigur á SC Pick Szeged, 35-27. Spænska liðið vissi að sigur myndi tryggja þeim sæti í átta liða úrslitum keppninnar þangað sem tvö efstu lið riðilsins komast en næstu fjögur lið berjast síðan um hin tvö sætin í umspilsleikjum. Það var lítil spenna í leiknum í kvöld. Börsungar voru komnir ellefu mörkum yfir í hálfleik, 21-10. Það var reyndar enginn Íslendingaslagur í kvöld því Janus Daði Smárason spilaði ekki með Szeged í þessum leik. Viktor Gísli fékk líka lítið sem ekkert að spila en reyndi við eitt vítakast. Danski markvörðurinn Emil Nielsen varði ellefu skot. Sigvaldi Björn Guðjónsson og félagar í Kolstad töpuðu með tólf marka mun á útivelli á móti nýkrýndum dönsku bikarmeisturum í Álaborg, 36-24. Sigvaldi skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum í fyrri hálfleik en eftir hann munaði aðeins þremur mörkum á liðunum, 17-14 fyrir Álaborg. Sigvaldi bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik og var markahæstur í sínu liði með sex mörk úr sex skotum. Simon Jeppsson skoraði líka sex mörk. Sigurjón Guðmundsson var varamarkvörður en Benedikt Gunnar Óskarsson var ekki með. Kolstad er í sjöunda sæti með fjögur stig og fjórum stigum frá sæti í umspilinu. Álaborg komst í toppsætið með þessum sigri.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Gagnrýndur fyrir að ætla af HM til að vera viðstaddur fæðingu Fótbolti Slógu met Íslands og markvörðurinn jafnaði met á HM Fótbolti Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dagskráin í dag: Risa leikur í Bestu deildinni og úrslitin ráðast á U.S. Open Sport Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Fleiri fréttir Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Sjá meira