Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. febrúar 2026 11:36 Töluvert vatn lak á gólfið. Samsett Heitavatnslögn gaf sig í Varmahlíðarskóla í Skagafirði aðfaranótt þriðjudags og lak vatnið niður þrjár hæðir í forstofu skólans. Aðstoðarskólastjóri hælir skjótum viðbrögðum starfsfólksins. Nemendur fengu snemmbúið vetrarfrí. „
Það er búið að stöðva lekann en þetta gerðist um nótt þannig það lak alla nóttina,“ segir Kristvina Gísladóttir, aðstoðarskólastjóri við skólann. „Þetta gerðist uppi á lofti, þetta var einhver lögn sem lá inni á loftræstikerfi. Öll steinullin sem var uppi á loftinu er blaut.“ Hún lýsir því hvernig bleytan hafi blasið við starfsmönnum sem mættu snemma til vinnu á þriðjudagsmorgun. Kristvina hælir starfsfólkinu sem hafi brugðist hratt við. „Það er ótrúlegt í hvaða gír fólk fer, allir hjálpast að og hlaupa á milli,“ segir hún. Kristvina segir starfsmenn tryggingafélags og sveitarfélagsins á vettvangi og að unnið sé að því að þurrka húsið. Í gær hafi starfsfólkið hliðrað starfseminni svo, ef húsið er talið nægilega þurrt að loknu vetrarfríi á þriðjudag, sé hægt að taka á móti nemendunum sem eru 110 talsins. Vetrarfrí barnanna er til og með mánudegi svo eftir helgi verður staðan metin. Vinnurými starfsfólksins, þar á meðal skrifstofa skólastjóra og ritara, komu hvað verst út úr lekanum. Tónlistarskólinn sem er til húsa í grunnskólanum slapp með skrekkinn svo telur Kristvina möguleika á að flytja starfsemi skólans tímabundið yfir. Óhefðbundinn öskudagsfögnuður Öll kennsla féll niður bæði þriðjudag og miðvikudag, þar á meðal sérstakur öskudagsfögnuður. Sjö skólabílar sækja nemendur skólans í nágrenni hans og voru fyrstu nemendurnir að stíga um borð þegar foreldrarnir voru látnir vita af lekanum. Skrifstofa starfsmanna koom hvað verst út.Aðsend „Því við erum í sveitinni höfum við haft skemmtun fyrir krakkana fyrir hádegi og svo hafa allir farið í vetrarfrí,“ segir Kristvina en öskudagsnefndin hafði haft fyrir því að tryggja að fyrirtæki á svæðinu væru opin og tilbúin að taka við börnunum. Einhver þeirra hafi farið á eigin vegum þangað, eða á Sauðárkrók, en önnur fagnað lengra vetrarfríi.
Skagafjörður Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira