Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. febrúar 2026 12:02 Frá hægri: Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, Albert Þór Magnússon og Markús Árni Vernharðsson. Knattspyrnudeild Selfoss og umboðsaðilar Kappahl á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning til fimm ára. Kappahl verður mikilvægur bakhjarl félagsins og knattspyrnuhöllin á Selfossi nefnd í höfuðið á tískumerkinu.
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samhliða þessu verði kynnt til sögunnar Kappahl-mótið, sem byggi á grunni sem spannar áratug. „Með þessu verður vörumerkið Kappahl sýnilegt í hjarta starfseminnar og hluti af daglegu lífi iðkenda, foreldra og stuðningsfólks. Þess ber að geta að styrkur vegna nafnsins á Kappahl-höllinni mun að auki renna til uppbyggingu frjálsíþróttadeildar Ungmennafélagsins til jafns við fótboltann,“ segir í tilkynningunni. Samningar undirritaðir. „Þetta er risastór dagur fyrir okkur. Við erum í raun að undirstrika með undirskrift í dag það samstarf sem spannar yfir áratug með UMF Selfoss. Þetta hefur vaxið og dafnað í gegnum tíðina. Við byrjuðum hérna fyrir 10 árum síðan með vonina, nú er trúin tekin við en við erum full tilhlökkunar fyrir framhaldinu hér á Selfossi,“ segir Albert Þór Magnússon. Albert Þór og eiginkona hans, Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, eru umboðsaðilar Kappahl á Íslandi. Þau voru áður með umboðið fyrir Lindex og var knattspyrnuhöllin áður kölluð Lindex-höllin. Unnið verður að uppsetningu Kappahl-merkja og sýnileika vörumerksins á vallarsvæðinu á næstu dögum. Verslun Kappahl og Newbie opnar 21. mars á Selfossi, við hliðina á Bónus, þar sem Lindex er nú til húsa. „Kappahl var stofnað í Svíþjóð 1953 og rekur fyrirtækið 345 verslanir í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Póllandi og Bretlandi. Fyrirtækið hefur fest sig í sessi sem eitt af leiðandi tískuvörumerkjum Skandinavíu, með ríka áherslu á sjálfbærni, sígildar grunnflíkur, undirfatnað og tískufatnað fyrir konur, karla og börn,“ að því er segir í tilkynningunni.
Tíska og hönnun Árborg Fótbolti Neytendur Mest lesið Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Viðskipti innlent Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Viðskipti innlent 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Viðskipti innlent Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Viðskipti innlent Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Fleiri fréttir Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Ráðin framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Húsasmiðjunni Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Fjögur ráðin til Cirkus auglýsingastofu Valhöll seld en óvíst með framhaldið Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð „Laxaveisla á Íslandi“ og útlit fyrir umtalsverðan vöxt í framleiðslu Sjá meira
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent