Hætta að rukka foreldra fyrir leikskólapláss í Ölfusi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. febrúar 2026 14:20 Breytingin kemur í aðdraganda kosninganna í vor. Vísir Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn.
Elliði Vignisson bæjarstjóri greinir frá ákvörðuninni í skoðanagrein á Vísi og segir hana byggja á sterkri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Rekstur Ölfuss hafi gengið vel síðustu ár og samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2025 verði afgangur 1.346 milljónir króna, sem sé umfram áætlun. Íbúum hafi jafnframt fjölgað um 4,5 prósent á árinu, eða 6,5 prósent þegar leiðrétt er fyrir oftalningu fyrri ára. Nú búi rúmlega 3.000 manns í sveitarfélaginu. Bæjarstjóri segir svigrúm hafa skapast til að fjárfesta í aukinni velferð, sérstaklega fyrir ungt fólk og barnafjölskyldur. Hann bendir á að fasteigna- og leiguverð hafi hækkað hraðar en laun á undanförnum árum og að staða ungs fólks hafi versnað, einkum í ljósi verðbólgu og hærri vaxta. Markmiðið með gjaldfrjálsum leikskóla sé að létta undir með fjölskyldum og tryggja að góður rekstrarárangur skili sér beint til íbúa. Ákvörðunin sé liður í því að styrkja stöðu ungs fólks og skapa traustan grunn fyrir áframhaldandi uppbyggingu í Ölfusi. Gengið verður til sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí næstkomandi.
Ölfus Leikskólar Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira