Frank Booker eldri látinn Aron Guðmundsson skrifar 21. febrúar 2026 12:58 Booker feðgarnir féllust í faðma eftir leik Njarðvíkur og Vals í úrslitakeppni efstu deildar í maí árið 2024. Vísir/Hulda Margrét Frank Booker eldri er látinn 61 árs gamall að aldri. Sonur hans, Frank Aron Booker, greinir frá andláti föður síns núna í morgun.
Frank Booker eldri er einn allra besti körfuboltamaðurinn sem hefur spilað í efstu deild hér á landi og átti sonurinn, Frank Aron Booker, eftir að feta í fótspor hans hér heima þar sem hann spilar nú með liði Vals. „Í gær missti ég seglin á skipi mínu, ljós Norðurstjörnu minnar dofnaði, vængirnir á flugvélinni minni hafa dottið af og ég veit ekki hvernig ég kemst aftur á rétta leið,“ ritar Frank Aron Booker yngri um leið og hann greinir frá andláti föður síns, Frank Alonzo Booker. View this post on Instagram A post shared by Frank Aron Booker (@frank_aron7) „Frank Alonzo Booker, Frank Sr, Big Frank, Pap, voru hans mörgu nöfn. Hann snerti svo marga með brosi sínu sem gat bætt daginn hjá hverjum sem er. Hann var minn leiðbeinandi og þjálfari alla mína ævi og nú er hann farinn. Þú býrð þig undir daginn sem foreldrar þínir yfirgefa þessa jörð, því það er eðlileg atburðarás. En án viðvörunar kallaði Guð þig heim. Nú þegar áhyggjur heimsins eru af herðum þínum nýturðu nú ferlsi til að slaka á, Pap.“ Frank Aron þakkar fyrir þann hlýhug sem hann og fjölskylda Frank Alonzo hefur fundið fyrir. „Ég syrgi með ykkur öllum. Elska þig, Pap, þú verður alltaf ofurhetjan mín. Þú getur nú hitt barnabarn þitt og annast hana fyrir mig. Þangað til við hittumst aftur.“ Frammistaða sem verður seint toppuð Frank Booker eldri kom hingað til lands árið 1991 þegar að hann gekk í raðir ÍR og átti seinna meir einnig eftir að spila fyrir lið Vals og Grindavíkur. Bandaríkjamaðurinn lét til sín taka hér á landi og varð bikarmeistari með Grindavík árið 1995. Í þrígang varð hann stigahæsti leikmaður efstu deildar og var fjórum sinnum valinn í stjörnulið deildarinnar. Frammistaða hans fyrsta mánuðinn hér á landi með ÍR verður seint toppuð. Frank Booker skoraði fimmtán þriggja stiga körfur í fyrsta leiknum (á móti Njarðvík 8. janúar) og alls 63 þrista í sex leikjum í janúar, eða 10,5 að meðaltali í leik.Hann skoraði fimmtán þriggja stiga körfur í 1. og 3. leik sínum (á móti Snæfelli 17. janúar) á Íslandi og stóð það met til ársins 2018 þegar að Brynjar Þór Björnsson sló það með sextán þriggja stiga körfum í einum og sama leiknum með Tindastól. Booker skoraði alls 304 stig í þessum sex leikjum ÍR í janúar 1991, eða 50,7 stig að meðaltali í leik.Booker hitti úr 63 af 130 þriggja stiga skotum sínum í þessum sögulega mánuði sem gerir 48 prósenta þriggja stiga skotnýtingu. Hann fékk hins vegar ekki skráða á sig eina stoðsendingu í þessum leikjum. Í þáttaröðinni Kaninn ræddi Frank Booker eldri dvöl sína hér á landi sem og vináttu sína og kraftajötunsins Jóns Páls Sigmarssonar. Klippu úr þættinum má sjá hér fyrir neðan. Frank Booker fæddist í Augusta í Georgíuríki þann 22.mars árið 1964. Hann spilaði í háskólaboltanum þar í landi fyrir Bowling Green State Unitversity árin 1983-1987 og var síðan valinn í nýliðavali NBA deildarinnar af New Jersey Nets. Leið hans lá seinna á ferlinum til Íslands og það er hér sem Booker fjölskyldan hefur fest rætur að einhverju leiti. Frank Aron Booker er nú leikmaður Vals og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2024 og hefur í tvígang orðið bikarmeistari. Þá á hann að baki fjóra A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Körfubolti Valur ÍR Grindavík Bónus-deild karla Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Þýskaland - Fílabeinsströndin | Önnur sýning hjá Þjóðverjum? Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira