Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 17:09 Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga. SKAGI Samrunaviðræðum Skaga hf. og Íslandsbanka hf. hefur verið slitið. Þetta kemur fram í Kauphallartilkynningu frá Skaga sem send var út síðdegis.
Íslandsbanki og Skagi undirrituðu samkomulag þann 6. október síðastliðinn um helstu skilmála samruna félaganna. „Stjórn Skaga harmar að þetta sé niðurstaða þess ferlis sem lagt var upp með enda er það mat hennar að verulegur ávinningur yrði af samruna félaganna og tækifæri til framtíðar fyrir alla hagaðila. Samruni við Íslandsbanka var í samræmi við stefnu félagsins um að taka þátt í nauðsynlegum breytingum á fjármálamarkaði og voru skýr tækifæri til staðar til að sækja fram á öllum sviðum fjármálaþjónustu,“ segir í tilkynningunni. Fram kemur að í samkomulaginu hafi verið festir í sessi helstu skilmálar fyrirhugaðs samruna félaganna, þar á meðal gagngjald í formi ákveðins fjölda nýrra hluta í Íslandsbanka, ásamt því að sammælst hafi um skilgreint og tímasett ferli áreiðanleikakannana, samlegðargreiningar, vinnu við samrunasamning og gerð tilkynninga til Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Í samkomulaginu hafi verið gert ráð fyrir mögulegri aðlögun gagngjalds byggt á efnislegum atriðum sem kynnu að koma fram í áreiðanleikakönnunum eða samfara hugsanlegum skilyrðum Samkeppniseftirlitsins sem kynnu að hafa áhrif á viðskiptalegar forsendur. „Líkt og fram hefur komið í fyrri tilkynningum beggja aðila hefur vinna við framangreinda verkþætti gengið vel og verið án teljandi efnislegra athugasemda.“ Þá segir að Íslandsbanki hafi nú lagt fram tillögu sem feli í sér verulegar breytingar á gagngjaldi, umfram efnisleg atriði sem hafa komið upp í ferlinu. „Stjórn Skaga telur að ný tillaga Íslandsbanka rúmist ekki innan umsaminna skilmála og endurspegli á engan hátt virði Skaga í sameinuðu félagi. Aðilar hafa því sammælst um að fyrrnefnt samkomulag frá 6. október sé fallið niður og samrunaviðræðum slitið. Íslandsbanki og VÍS hafa átt í farsælu samstarfi síðastliðið ár. Með samstarfinu njóta viðskiptavinir sem eru í viðskiptum við bæði félög ávinnings í vildarkerfum félaganna. Að auki hafa viðskiptavinir nú betri yfirsýn yfir fjármálavörur og tryggingar í appi bankans. Aðilar eru sammála um að halda þessu góða samstarfi áfram, viðskiptavinum beggja til heilla.“ Loks segir að forsvarsmenn Skaga muni nú beina spjótum sínum alfarið að innleiðingu stefnu félagsins um arðbæran vöxt á sviði trygginga, fjárfestingarbankastarfsemi og eignastýringar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Skagi Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Tryggingar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira