Kona á öld hrottans Bjarni Karlsson skrifar 22. febrúar 2026 07:30 Nú er konudagurinn haldinn. Hvað er það? Hvað er kona á tímum þegar gamlir hvítir karlar halda veröldinni í gíslingu með landránum og sprengingum af ótta við allt sem kynni að gerast ef lífið fengi að blómstra á sínum raunverulegu forsendum? – Við þurfum að gæta jafnvægis, segja þeir ábúðarfullir hver við annan. Nú skulum við gera Gaza að hagkvæmri rekstrareiningu handa okkur og köllum það Friðarráð! Ha ha ha. Varist falsspámenn, sagði Jesús um þessa menn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá.[1] Þjófurinn kemur ekki nema til að stela og slátra og eyða. Ég er kominn til þess að þeir hafi líf, líf í fullri gnægð.[2] Hey, strákar, segja friðarráðherrarnir á Gaza og eru í essinu sínu, við verðum líka að koma böndum á kristindóminn. Þeir yrðu nú ekki kræsilegir ársreikningarnir ef hann fengi að fara að eðli sínu. Líf í fullri gnægð hefur aldrei skilað hagnaði, nema fáir njóti. Og fyrst við erum að ræða allt þetta kerlingakjaftæði - Var ekki pottþétt búið að koma því inn í öll kerfin að loftslagsvandi er sósíalísk histería? Ha ha ha! Hendum nú í eina góða hópmynd! Það er konudagur og því er vert að spyrja: Hvað er kona á öld hrottans? Í leit að svari skyldum við ekki gleyma því að nú lifum við hér heima við þær óvenjulegu aðstæður að konur gegna flestum helstu valdastöðum í samfélaginu. Það ætti að vera eitthvað, þótt það breyti ekki því að við þessar öfgafullu aðstæður í heimsmálunum hlýtur kona þó alltént að vera hluti af einhvers konar aukaverkuleika. Saga af konu Sumarið 1991 sótti ég og eiginkona mín, Jóna Hrönn Bolladóttir, um tvær prestsstöður í Vestmannaeyjum. Svo ólík var veröldin þeirri sem við þekkjum hér heima í dag að þá kom aldrei annað til tals en að ég yrði sóknarprestur og hún kæmi upp að hlið mér í starfi. Hún var, jú, kona. Ert þú að taka við í Eyjum? spurði eldri herra í prestastétt með viðurkenningartón í röddinni. Já, svaraði ég, við förum saman í þetta hjónin. Er hún að fá embætti líka? spurði hann forvitinn. Já, já, það þarf tvo presta á Heimaey. Þá kom stutt þögn uns þessi ágæti karl mælti með tilfinningaþunga: Konur eru og verða konur. Við vorum tuttugu og sjö og átta ára með vaxandi fjölskyldu og dagarnir í Eyjum urðu hnausþykkir af önnum, yndi og reynslu. Eitt kom þó fljótt í ljós; Aldrei hafði kona annast útför í hinni virðulegu Landakirkju. Mánuðir og misseri liðu. Við gengum til starfa hlið við hlið á öllum sviðum, en þegar einhver kvaddi jarðlífið var karlpresturinn beðinn um að tala yfir og kasta rekunum. Annað hafði aldrei tíðkast. Dag einn lést yndisleg gömul kona á sjúkrahúsinu eftir erfiða banalegu. Eftir sat sormæddur eiginmaður. Þetta var lífsreyndur og flottur karl. Þar sem hann sat með fólkinu sínu og farið var að huga að útför mælti sá gamli: Úr því Jóna Hrönn prestur var nógu góð til að vitja hennar mömmu ykkar vikulega alla mánuðina sem hún þurfti að þjást, þá er hún líka nógu góð til að jarðsyngja hana! Upp úr þessu fór samfélagið í Eyjum að njóta prestsþjónustu konu við jarðarfarir líkt og á öðrum sviðum. Já, mikið vatn hefur runnið til sjávar og margt hefur breyst, og þó. Ekkert hugtak er pólitískara en kona. Aðal og auka Í árþúsundir hefur okkar svo nefnda kristna menning talað um Guð föður og móður jörð. Þannig höfum við tileinkað karlinum viskuna en konunni nytsemina. Karlinum andann en konunni efnið. Okkur hefur þótt karlmannlegt að stjórna þarna uppi en kvenlegt að þjóna þarna niðri. Þannig höfum við um langar aldir föndrað við það að skipta veruleikanum upp í andstæðupör þar sem hið hvíta og karlmannlega er aðal en hið litríka og kvenlega er auka, ásamt dýraríkinu og náttúrunni eins og hún leggur sig. Franz páfi talaði á þá leið fyrir nokkrum árum að svo virtist sem menn teldu sig geta bætt upp fölnandi litadýrð vistkerfisins með litríku vöruúrvali í hillum verslana. Og nú vekja umhverfissálfræðingar athygli á því að litir séu jafn vel líka á undanhaldi á markaðnum. Það sjáist í merkjum stórra fyritækja og ýmsu manngerðu umhverfi að viljir þú láta taka mark á þér sé best að vera vera hvítur og steingrár. Tími regnbogans og inngildingarinnar er liðinn. Fjölmenning er bannorð, mannréttindi barnaskapur og jafn vel dauðasök. Vistkerfisvandi bara til í kerlingabókum. Þó veit hver menntskælingur að lífið er ofið ógrynni örfínna þráða. Í kjarna sínum er lífið, í öllum sínum gróanda, örsmátt og auðsæranlegt og byggir alfarið á gagnkvæmri þjónustu ótal þátta. Hið gráhvíta sprengivald skortir alla getu til að greina og virða samhengi svo að allt sem er viðkvæmt fölnar, visnar og deyr undir hæl þess. Svo einfalt er það. Pólitík sem upphefur yfirráð hins stóra, sterka og harða en fyrirlýtur þjónustu hins smágerða, sveigjanlega og mjúka miðlar dauða jafn vel þótt það kalli sig Friðarráð og taki hressa hópmynd af öllum strákunum í klúbbnum. Öll tapa Þessari langþróuðu skautunarmenningu, sem tíðkast hefur frá örófi alda og náð nýjum hæðum á okkar tímum, fylgir víðfeðmur skortur á upplýsingum svo að sitt hvað fer í vaskinn: Staðreyndir um stöðu mannkyns gagnvart vistkerfinu brenglast í meðförum svo að við blasir aðgerðaleysi og alls herjar gjaldþrot sem útvistast til ófæddra kynslóða. Kynþáttahyggja veður uppi þannig að fólk sem í öllum grundvallarþáttum er nákvæmlega eins heldur að það sé einmitt gjör ólíkt og muni aldrei geta skilið hvert annað eða komið sér saman um nokkurn hlut svo fáfræði og framandleiki tekur yfir. Ólíkir menningarheimar missa af mörgu sem hefði mátt njóta af öðrum en tortryggni þróast milli heilu heimshlutanna. Kynjahyggja verður ráðandi með stækri áherslu á ólíkindi karla og kvenna þannig að fólk parar sig saman í gagnkvæmum misskilningi og hefðbundinni höfnun svo til verða ótal einmana sálir í sambúð. Á sama tíma stendur kynseginfólk eftir sem einhvers konar aukaleikarar á sviði óhamingjunnar. Listinn er endalaus yfir þá hópa sem fara kerfisbundið halloka á öld hrottans og niðurstaðan verður sú að obbi allra manna og lífvera stendur eftir lítt mikilvægur innan ríkjandi heimsmyndar þar sem 1% mannkyns er aðal og restin auka. Hvað er þá kona? Kona er lifandi persóna sem, rétt eins og karlar og kvár, þarf sárlega á því að halda að öld hrottans linni en við taki öld friðar sem grundvallist á virðingu og samlíðun með öllu sem lifir. Höfundur er prestur og siðfræðingur. [1] Matteusarguðspjall 7.15 [2] Jóhannesarguðspjall 10.10. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Karlsson Konudagur Trúmál Mest lesið Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson Skoðun Sóun á almannafé í stað uppbyggingar Guðbjörg Magnúsdóttir Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun Kæmu úr okkar eigin vösum Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś Skoðun Miðflokkarnir tveir í Kópavogi Pétur Björgvin Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Borg sem er skemmtilegri en skjárinn Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Það er ekki víst að þetta reddist Kristinn Árni L. Hróbjartsson,Hafsteinn Hauksson skrifar Skoðun Sóun á almannafé í stað uppbyggingar Guðbjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kæmu úr okkar eigin vösum Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś skrifar Skoðun Fjölskyldubærinn Akranes Sigurður Vopni Vatnsdal skrifar Skoðun Tækifæri í stað takmarkana! Bergljót Borg skrifar Skoðun Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson skrifar Skoðun Aðdáunarverð þrautseigja Grindvíkinga Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Veistu á hvaða lyfjum þú ert? Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar Skoðun Menntaforystan er að plata þig Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Réttindabarátta fatlaðs fólks í 65 ár Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar Skoðun Þegar áframhald verður bakslag Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sjálfstætt líf og fimm spurningar sem skipta öllu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samvinnuhugsjón í leikskólamálum Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun „Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hvernig ræktum við frið í huga fólks? Sæunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Borgin skapi hlutastörf Stefán Pálsson skrifar Skoðun Gleymum ekki hestamönnum og skátum Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Er gott að eldast á Akranesi? Hugrún Eva Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Eitt samtal getur breytt deginum Alda Björk Harðardóttir skrifar Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar Skoðun Reykjanesbrautin - við leysum hnútinn Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Menningin er hjartað í Hafnarfirði Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Lækkun gjalda: skref í rétta átt, en enn langt í land Valborg Ösp Árnadóttir Warén skrifar Skoðun Sveitarfélög á Íslandi og Evrópusambandið Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Sjá meira
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun
Skoðun Stwórzmy społeczeństwo, w którym nikt nie będzie się czuł niewidzialny. Katarzyna Kubiś skrifar
Skoðun Slæleg hagsmunagæsla meirihluta bæjarstjórnar – það þarf að gera mun betur Unnar Jónsson skrifar
Skoðun Eitt markmið, betra Hveragerði Guðjón Óskar Kristjánsson,Jónas Guðnason,Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason skrifar
Ég er 57 ára og tilbúinn til að leggja mitt af mörkum — en fæ ekki tækifærið Gunnar Gíslason Skoðun