Sport

Hetjan missti tönn: „Ég elska Banda­ríkin“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jack Hughes var sáttur eftir úrslitaleikinn í dag, þrátt fyrir að framtönnin hafi brotnað.
Jack Hughes var sáttur eftir úrslitaleikinn í dag, þrátt fyrir að framtönnin hafi brotnað. getty/Andrea Branca

Jack Hughes var einni tönn fátækari en einum gullverðlaunum ríkari eftir úrslitaleikinn í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina.

Hughes skoraði sigurmark Bandaríkjanna í úrslitaleiknum gegn Kanada og tryggði bandaríska liðinu því sitt fyrsta Ólympíugull í íshokkí karla í 46 ár. 

Síðast unnu Bandaríkjamenn gullið 1980, þegar þeir lögðu ofurlið Sovétmanna í leik sem er jafnan kallaður Kraftaverkið á ísnum. Bandaríska liðið varð einnig Ólympíumeistari 1960 en vann í dag gullið í fyrsta sinn utan Bandaríkjanna.

Í 3. leikhluta missti Hughes framtönn eftir viðskipti við Sam Bennett sem var sendur í kælingu.

„Fyrsta hugsun var að ná í brot. Reyndar horfði ég fyrst á ísinn og sá tönnina,“ sagði Hughes.

Hann lét tannleysið ekki á sig fá og skoraði sigurmarkið eftir eina mínútu og 41 sekúndu í framlengingunni, 2-1.

„Fleiri munu horfa á medalíuna hans en tönnina,“ sagði Matt Boldy, samherji Hughes, í léttum dúr, í leikslok.

Stoltur Bandaríkjamaður

Hughes var fullur þjóðarstolts eftir úrslitaleikinn í Mílanó.

„Þetta snerist allt um landið okkar. Ég elska Bandaríkin. Ég elska liðsfélaga mína. Ég er svo stoltur af því að vera Bandaríkjamaður í dag,“ sagði Hughes sem skoraði alls fjögur mörk á Vetrarólympíuleikunum.

Hinn 24 ára Hughes leikur með New Jersey Devils í NHL-deildinni og hefur gert frá því liðið valdi hann með fyrsta valrétti í nýliðavalinu 2019.

Bandaríkin unnu alla sex leiki sína á Vetrarólympíuleikunum sem lauk í dag. Fjórir sigranna komu í venjulegum leiktíma og tveir í framlengingu. Bandaríska skoraði 26 mörk og fékk á sig níu á leikunum í Mílanó og Cortina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×