Með gríðarlega fjármuni til ráðstöfunar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 25. febrúar 2026 06:31 Fyrir jól tilkynnti utanríkisráðuneytið að ákveðið hefði verið að veita Evrópuhreyfingunni og Heimssýn fjárstyrk til þess „að efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu (ESB) og tryggja greiðan aðgang almennings að upplýsingum í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB“ eins og það var orðað í fréttatilkynningu ráðuneytisins. Hreyfingarnar fengju þannig styrk upp á tíu milljónir króna hvor. Tæpum mánuði áður var skýrsla þings Evrópusambandsins um norðurslóðir samþykkt með miklum meirihluta atkvæða þar sem fram kemur meðal annars vilji þingsins til þess að hafa pólitísk áhrif á umræðuna hér á landi fyrir þjóðaratkvæðið og aðrar stofnanir þess hvattar til þess sama. Þar er rætt um og hvatt til þess að sambandið taki „með virkum hætti þátt í því með íslenzku ríkisstjórninni að kynna kosti mögulegrar aðildar að ESB“ í aðdraganda kosningarinnar. Með öðrum orðum eingöngu kosti inngöngu í Evrópusambandsins að mati þess og í samstarfi við ríkisstjórnina! Fjallað hefur verið talsvert um málið í fjölmiðlum síðan skýrslan kom til sögunnar auk þess sem það hefur ítrekað verið til umræðu á Alþingi. Þá bæði í umræðum í þingsal og utanríkismálanefnd þingsins, þar sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, hefur setið fyrir svörum, og nú síðast í skriflegri fyrirspurn til ráðherrans. Hins vegar hefur Þorgerður nákvæmlega ekkert athugavert séð við það að ein helzta stofnun erlends ríkjasambands hafi lýst formlega yfir vilja til afskipta af lýðræðislegri kosningu á Íslandi og hvatt aðrar helztu stofnanir þess til að gera slíkt hið sama. Hugsanlega ætti það ekki að koma á óvart í ljósi þess að samkvæmt skýrslunni lagði Þorgerður til efni í hana. Eini ráðherra ríkis sem það gerði. Ekki er því hægt að útiloka að þetta hafi hreinlega verið að frumkvæði hennar. Fyrir utan það hversu óásættanlegt það er að erlend valdastofnun eins og Evrópusambandið lýsi yfir vilja til pólitískra afskipta af lýðræðislegum kosningum hér á landi, svo ekki sé talað um það ef honum verður hrint í framkvæmd, þarf varla að fara mörgum orðum um þá gríðarlegu fjármuni sem sambandið hefur til ráðstöfnunar í slíka pólitíska áróðursherferð hér á landi, beint og óbeint. Til viðbótar við það fjármagn sem ríkisstjórnin sjálf mun verja í þeim efnum. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar