Sporin hræða Snorri Másson skrifar 23. febrúar 2026 17:31 Fyrir tveimur árum fjallaði ég í vefmiðli mínum um þá ákvörðun Menntaskólans í Reykjavík að draga úr latínukennslu við skólann. Ég sagði sporin hræða en rektor fullvissaði mig í viðtali okkar að breytingarnar þá boðuðu ekki annað meira og verra. Annað hefur komið á daginn, líkt og fjallað er um í fjölmiðlum í dag.Nú er enn verið að draga töluvert úr latínukennslu við skólann og hún verður í haust felld alveg niður í fjórða bekk skólans, meðal annars vegna þess að nemendur kvarta yfir því að fagið sé of þungt á fyrsta ári. Þótt lögð sé áhersla á það í varnartóni í viðtölum, að ekki sé verið að loka fornmáladeildinni né hætta latínukennslu við skólann, er fullyrt í mín eyru að hér ræði um næstsíðasta skrefið í þá dapurlegu átt.Áhyggjur af afdrifum fornmáladeildarinnar eru ekki nýjar en staðan hefur að líkindum aldrei verið alvarlegri. Vigdís Finnbogadóttir var fyrir margt löngu útnefndur sérstakur verndari deildarinnar og margir hafa í gegnum tíðina sýnt þessari merkilegu stofnun stuðning í verki. Ekki hefur það verið vegna þess að hún sé svo yfirmáta þjóðhagslega hagkvæm, þótt ég reyndar haldi því fram, heldur finna margir að þetta er spurning um sjálfsmynd okkar sem menningarþjóðar.Okkur hefur auðnast að standa hér vörð um þetta litla en lífvænlega athvarf fyrir það sem eftir lifir af klassískri evrópskri menntun. Þetta íslenska vígi er ekkert minna en okkar framlag til framhaldslífs hinnar sameiginlegu vestrænu menningararfleifðar, sem á sannarlega í vök að verjast þessa dagana. Og jafnvel þótt menn kaupi ekki svo hátíðlegar röksemdir, held ég að allir Íslendingar vilji, ekki síst þegar allt annað er á hverfanda hveli, áfram geta ornað sér við ákveðnar óbifanlegar staðreyndir íslensks þjóðlífs. Ein þeirra er sú að sama á hverju gengur er enn kennd latína í MR.Baunateljarar hins opinbera kerfis hafa löngum amast við hinni fámennu fornmáladeild en skólinn hefur þar hrundið hverri sókninni á fætur annarri. Að glutra hinni sögulegu sérstöðu núna niður vegna tímabundinna breytinga í aðsókn eða lægðar frá ári til árs væri mikið glapræði og yrði erfiðlega aftur tekið.Inni á Alþingi hef ég barist gegn hugmyndum kennslufræðinga og embættismannakerfis um að steypa öllum íslenskum framhaldsskólum í sama mót, tilburðir sem sitjandi ríkisstjórn hefur sannarlega gert að sínum. Sú barátta er þó til lítils ef skólarnir ætla að spara yfirvöldum sporin og verða sjálfum sér verstir. Þar heggur sá er hlífa skyldi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Snorri Másson Miðflokkurinn Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar