Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Kristján Már Unnarsson skrifar 23. febrúar 2026 22:42 Lögþing Færeyja í Þórshöfn. Løgtingið Lögþing Færeyja samþykkti í kvöld frumvarp landstjórnarinnar um 24 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar með 23 atkvæðum gegn 7 eftir aðra umræðu. Einn sat hjá. Þar með þykir ljóst að þessi langlengstu jarðgöng í sögu Færeyja verða boðin út en þriðja og síðasta umræða er sögð formsatriði. Undirskrift verksamnings er þó háð samþykki þingsins.
Síðdegis hafði Lögþingið samþykkt frumvarp stjórnarinnar um hækkun eftirlaunaaldurs í áföngum upp í 69 ár. Eftirlaunafrumvarpið náði naumlega í gegn með minnsta mögulega mun, 16 atkvæðum gegn 15, en frumvarpið mætti harðri andstöðu innan launþegahreyfingarinnar. Þótt forystumenn stjórnarflokkanna þriggja hafi ekki viljað viðurkenna það opinberlega var vitað að samþykkt Suðureyjarganga var háð því að eftirlaunafrumvarpið hlyti jafnframt brautargengi. Framsókn, flokkur fjármálaráðherrans Ruth Vang, hafði skilyrt stuðning sinn við Suðureyjargöngin því að eftirlaunafrumvarpið fengist samþykkt og hékk stjórnarsamstarfið raunar á bláþræði vegna málsins. Lögþingið hafði áður samþykkt árið 2018 að 67 ára eftirlaunaaldur skyldi frá 1. júlí 2024 hækka um hálft ár og aftur um hálft ár frá 1. júli 2030, sem þýðir að frá árinu 2030 verður eftirlaunaldur í Færeyjum kominn í 68 ár. Með samþykkt lagafrumvarpsins núna hækkar eftirlaunaldur upp í 68,5 ár árið 2035 og upp í 69 ár árið 2038. Valkostirnir tveir sem helst voru til skoðunar á göngum milli Sandeyjar og Suðureyjar. Niðurstaða flokkanna á Lögþinginu var að velja leið 1A. Hún er 24,4 kílómetra löng, með 1,5 kílómetra legg til að tengja Skúfey, og talin kosta um 95 milljarða íslenskra króna.grafík/Hjalti Freyr Ragnarsson Miklar deilur voru einnig um vegtengingu Suðureyjarganga við Sandey og veglínu þvert yfir Sandey til að tengja gangamunna fyrirhugaðra Suðureyjarganga við gangamunna Sandeyjarganga, sem voru opnuð fyrir tveimur árum. Sandeyingar sögðu veginn kljúfa eyjuna í tvennt, mikið ónæði myndi skapast af umferðinni. Einnig sameinuðust hin ýmsu samtök í andstöðunni sem töldu dýrmætu landi fórnað undir veginn. Í meðförum þingsins var að nokkru leyti komið til móts við þessi sjónarmið með því að veglína, sem átti að liggja vestan Sandavatns, var færð austur fyrir vatnið og hluti vegarins settur í jarðgöng um Traðarhamar. Í frétt Sýnar fyrir fjórum mánuðum var fjallað um þetta risaverkefni. Samþykkt frumvarpsins í kvöld felur í sér að stysta veglína jarðganga var valin. Hún þýðir að Suðureyjargöng verða 22,8 kílómetra löng milli Sandeyjar og Suðureyjar. Auk þess verður lagður 1.550 metra langur afleggjari til að tengja Skúfey við göngin. Heildarlengd jarðganga verður þannig um 24,4 kílómetrar. Mesta dýpi verður 180 metrar og mesti veghalli 5 prósent, en þó 10 prósent að Skúfey. Göngin verða boðin út með bæði 10,5 metra breidd og 9,5 metra breidd en afleggjarinn að Skúfey með 8,5 metra breidd. Heildarkostnaður við jarðgöngin er áætlaður 4.125 milljónir danskra króna, en með vegagerð og jarðgöngum á landi um Traðarhamar alls 4.875 milljónir danskra króna, eða sem nemur um 95 milljörðum íslenskra króna. Áætlað er að útboðs- og samningsferli geti tekið tvö ár og verkhönnun og framkvæmdir átta ár. Suðureyjargöng gætu þannig verið tilbúin eftir áratug.
Færeyjar Samgöngur Vegagerð Eldri borgarar Vegtollar Tengdar fréttir Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Samstaðan, sem náðist milli stjórnmálaflokkanna í Færeyjum í síðustu viku um veglínu Suðureyjarganga, virðist ekki eins víðtæk og ætla mátti. Náttúru- og umhverfissamtök hafa risið upp og mótmælt og íbúar Sandeyjar virðast afar ósáttir. Deildir flokkanna á Sandey leggjast hart gegn niðurstöðunni. Þá lýsa lykilmenn í efnahagsmálum eyjanna þeirri skoðun að jarðgöngin séu fjárhagslegt glapræði. Færeyingar muni ekki hafa ráð á göngunum. 2. nóvember 2025 08:08 Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, tilkynnti í Ólafsvökuræðunni í fyrradag, setningarræðu færeyska lögþingsins, að frumvörp landsstjórnarinnar um gerð Suðureyjarganga og hækkun eftirlaunaaldurs yrðu bæði lögð fram að nýju í haust. Einn stjórnarflokkanna, Framsókn, fékk því framgengt að málin verði spyrt saman og að Suðureyjargöng verði ekki samþykkt nema hækkun eftirlaunaaldurs í áföngum upp í 70 ár fylgi með. 31. júlí 2025 12:30 Búa sig undir ákvörðun um stærsta mannvirki Færeyja Færeyingar búa sig núna undir stærstu ákvörðun færeyskrar mannvirkjagerðar, hvort grafa eigi 26 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar. Þeir stefna að ákvörðun eftir hálft ár og vonast til að framkvæmdir hefjist innan þriggja ára. 19. júní 2024 22:00 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Sjá meira
Allt í loft upp í Færeyjum vegna Suðureyjarganga Samstaðan, sem náðist milli stjórnmálaflokkanna í Færeyjum í síðustu viku um veglínu Suðureyjarganga, virðist ekki eins víðtæk og ætla mátti. Náttúru- og umhverfissamtök hafa risið upp og mótmælt og íbúar Sandeyjar virðast afar ósáttir. Deildir flokkanna á Sandey leggjast hart gegn niðurstöðunni. Þá lýsa lykilmenn í efnahagsmálum eyjanna þeirri skoðun að jarðgöngin séu fjárhagslegt glapræði. Færeyingar muni ekki hafa ráð á göngunum. 2. nóvember 2025 08:08
Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, tilkynnti í Ólafsvökuræðunni í fyrradag, setningarræðu færeyska lögþingsins, að frumvörp landsstjórnarinnar um gerð Suðureyjarganga og hækkun eftirlaunaaldurs yrðu bæði lögð fram að nýju í haust. Einn stjórnarflokkanna, Framsókn, fékk því framgengt að málin verði spyrt saman og að Suðureyjargöng verði ekki samþykkt nema hækkun eftirlaunaaldurs í áföngum upp í 70 ár fylgi með. 31. júlí 2025 12:30
Búa sig undir ákvörðun um stærsta mannvirki Færeyja Færeyingar búa sig núna undir stærstu ákvörðun færeyskrar mannvirkjagerðar, hvort grafa eigi 26 kílómetra löng neðansjávargöng til Suðureyjar. Þeir stefna að ákvörðun eftir hálft ár og vonast til að framkvæmdir hefjist innan þriggja ára. 19. júní 2024 22:00