Einar fundar með borginni um málefni miðborgar Lovísa Arnardóttir skrifar 25. febrúar 2026 13:25 Einar Bárðarson mun funda með fulltrúum borgarstjóra um málið. Vísir/Anton Brink Skrifstofa borgarstjóra ætlar að funda með Einari Bárðarsyni, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, um ýmis mál er varða veitingarekstur í miðborginni. Þau vilja ekki kalla það „friðarviðræður“ eins og Einar hefur kallað eftir en Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri borgarinnar, segir eiga að ræða ýmis mál er varða miðborgina á fundinum.
Einar gagnrýndi í viðtali við Vísi í dag svör borgarinnar vegna stöðumælasekta starfsfólks veitingahúsa við affermingar ekki standast fulla skoðun. Gert sé ráð fyrir undanþágum fyrir litlar sendingar í miðborgum nágrannalandanna. Talsmaðurinn kallar eftir samtali, auglýsir eftir stjórnmálamönnum og býður sig fram í „friðarviðræður“ vegna málsins. Vísir ræddi í gær við Hjalta Vignisson, eiganda hamborgarastaðarins 2guys við Hlemm. Starfsmenn þar hafa ítrekað fengið stöðumælasektir þegar þeir hafa affermt vörur, jafnvel þó þeir hafi einungis stoppað örstutt fyrir utan veitingastað sinn. Hamborgarastaðurinn er beint á móti Hlemmi og er svæðið nú einungis fyrir gangandi vegfarendur og er vörulosun heimil á milli 07:00 og 11:00. Sagðist Hjalti hafa mætt skilningsleysi á vegum borgarinnar vegna málsins, losunartíminn henti ekki. „Við erum að fara að tala almennt um mál miðborgarinnar,“ segir Eva Bergþóra í samtali við Vísi. Ekki verði aðeins talað um þetta mál. Einar sendi póst á borgarfulltrúa í gær og óskaði eftir samtali og greindi svo frá því í Bítinu á Bylgjunni í morgun að snemma í morgun hefði hann fengið símtal frá Evu Bergþóru um að hittast. „… síðan fékk ég hins vegar símtal klukkan sjö í morgun frá skrifstofu borgarstjóra. Venjulega hafði hún nú ekki hringt á þessum tíma en heyrði að ég var á leiðinni hingað þannig að ég hlyti að vera vaknaður. Það var Eva Bergþóra sem er samskiptastjóri borgarinnar og sagði að þau vildu fara í þessar viðræður, vildu nú kannski ekki kalla þær friðarviðræður, en óskuðu eftir fulltrúum frá okkur í hóp og bara kippa þessu í lag,“ sagði Einar í Bítinu í morgun. Einar segir Heiðu Björg Hilmisdóttur borgarstjóra mega eiga það að hún hafi tekið til eftir umræðu í tengslum við Hygge og sýnt vilja til að leysa málið. „Málið er í öruggum höndum þeirra megin og við förum bara í þessa umræðu, því þetta eru bara svona „common sense“ hlutir sem manni finnst oft vanta í samfélagið okkar,“ sagði Einar að lokum í Bítinu í morgun.
Reykjavík Borgarstjórn Sveitarstjórnarmál Veitingastaðir Stjórnsýsla Bítið Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Sjá meira