Leik lokið: Haukar-Fram 32-29 | Haukakonur aftur í bikarúrslitin Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 19:33 Haukar Fram. Powerade bikar kvenna 2025, handbolti HSÍ. Haukakonur tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleik kvenna í handbolta eftir þriggja marka sigur á Fram, 32-29, í undanúrslitaleik Powerade-bikars kvenna á Ásvöllum í kvöld. Haukar unnu einmitt Fram í bikarúrslitaleiknum fyrir ári síðan og mæta nú annaðhvort Val eða KA/Þór í úrslitaleiknum á laugardaginn en seinni undanúrslitaleikurinn fer fram seinna í kvöld. Fram var sterkari aðilinn framan af í fyrri hálfleik og voru Haukar lengst af í eltingaleik við að jafna leikinn. 14-14 var staðan er flautað var til hálfleiks. Síðari hálfleikur var jafn, en nú voru það Framarar sem þurftu að hafa fyrir því að jafna leikinn í hverri sókn. Þegar leið á hálfleikinn náðu Haukar góðum kafla og komust í fjögurra marka forystu. Fram minnkaði muninn niður í eitt mark, en tapaðir boltar og góður varnarleikur Haukakvenna gerðu það að verkum að forskotið jókst fljótt aftur. Munurinn fór mest niður í tvö mörk undir lokin og tókst Haukakonum því að sigla sigrinum heim á lokamínútum leiksins. Niðurstaðan, 32-29 og Haukar spila í úrslitaleiknum í Powerade bikarnum á laugardaginn. Atvik leiksins Ekkert sérstakt atvik en það vakti athygli að Framarar fengu sex vítaköst á fyrstu tuttugu mínútum leiksins. Stjörnur og skúrkar Embla Steindórsdóttir var öflug í liði Hauka með átta mörk. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir kom þar næst á eftir með sjö mörk. Sara Sif Helgadóttir átti nokkrar mikilvægar vörslur fyrir Hauka í leiknum en hún var með 13 varin skot. Ásdís Guðmundsdóttir var markahæst í liði Fram með sjö mörk. Stemning og umgjörð Það var lífleg og góð stemning í stúkunni í kvöld. Mætingin var afar góð og stuðningsmenn beggja liða létu vel í sér heyra. Umgjörðin til fyrirmyndar, eins og við má búast á undanúrslitaleik í bikarnum. Dómarar Í dómaratvíeyki kvöldins voru þeir Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson. Nokkuð auðveld vakt á parketinu, en það var lítið um vafamál og erfiða dóma. Viðtöl Haraldur Þorvarðarson: „Smávægilegir hlutir sem að skildu liðin að“ Haraldur, þjálfari Fram, var að vonum svekktur með úrslitin að leik loknum.Vísir/Ernir Eyjólfsson „Maður er auðvitað svekktur, stelpurnar gáfu allt í þetta og þetta var hörkuleikur tveggja góðra liða. Það voru smávægilegir hlutir sem að skildu liðin að.“ „Heilt yfir var frammistaða liðsins góð. Varnarlega var liðið frábært í fyrri hálfleik sérstaklega en við dettum að vísu aðeins niður á kafla í seinni hálfleik. Þá klikkum við á nokkrum færum og það var eiginlega munurinn á liðunum í dag.“ Stefán Arnarson: „Maður þarf að sýna ást og maður þarf að skilja sinn maka“ Haukar Fram Powerade-bikarinn Handbolti