„Þetta var aldrei eitthvað sjálfgefið“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. febrúar 2026 22:01 Anton Rúnarsson, þjálfari Vals. Vísir/Ernir Eyjólfsson „Við bara bjuggumst við hörkuleik, það er alveg klárt mál,“ sagði Anton Rúnarsson, þjálfari Vals eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta í kvöld.
Valskonur unnu sjö marka sigur gegn Þór/KA í undanúrslitum í kvöld, en lengst af var leikurinn jafn og spennandi. „Við lentum í veseni með þær í fyrsta leiknum og við vitum að þetta er hörkulið sem getur spilað sjö á sex og er með flnka leikmenn. Við bjuggumst við því, en ég var töluvert ánægðari með seinni hálfleik en fyrri hálfleik.“ Valskonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 3-0 strax í upphafi. Þær áttu þó í miklu basli með að hrista Þór/KA af sér og það tókst ekki fyrr en að um stundarfjórðungur var til leiksloka. „Eins og ég segi þá er þetta hörkulið sem hefur gert vel í vetur. Þetta hefur verið svona spútniklið deildarinnar, með fína leikmenn og þær hafa verið að stríða liðum og taka stig af góðum liðum og fleira. Þetta var aldrei eitthvað sjálfgefið og þær gáfu okkur klárlega leik í dag.“ Þá segir hann að betri varnarleikur í seinni hálfleik hafi skilað Valsliðinu sigri. „Mér fannst við bara ná að þétta varnarleikinn og þá kemur markvarsla og fleira með. Mér fannst við skulda sjálfum okkur betri frammistöðu. Við byrjuðum leikinn vel en svo fjaraði aðeins undan. Það voru tæknifeilar og við vorum aðeins að flýta okkur, sem við löguðum aðeins í hálfleik og gerðum betur í seinni.“ Valskonur mæta Haukum í úrlsitum Powerade-bikarsins næstkomandi laugardag. „Það leggst bara vel í mig. Það hafa alltaf verið hörkuleikir og hafa verið það á þessu tímabili og síðustu ár. Við erum bara spenntar að mæta þeim,“ sagði Anton að lokum.
Powerade-bikarinn Valur KA Þór Akureyri Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Fleiri fréttir Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Sjá meira