Íslendingarnir sem fá ekki að spila fyrir Ísland Valur Páll Eiríksson skrifar 26. febrúar 2026 09:01 Baldur Þór Ragnarsson skilur ekkert í óljósu regluverki Alþjóðakörfuboltasambandsins, FIBA. Vísir/Lýður Valberg Þeir Jaka Brodnik og Davis Geks fá ekki að spila fyrir landslið Íslands í körfubolta þrátt fyrir að vera með ríkisborgararétt. FIBA neitaði beiðni Íslands á þeim grundvelli að þeir hefðu spilað of marga unglingaleiki fyrir fyrri þjóð. Aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands furðar sig á málinu og óljósu regluverki.
Það er töluvert ferli sem fylgir því að leikmenn fái að spila fyrir landsliðið þrátt fyrir að þeir Jaka Brodnik og Davis Geks hafi verið komnir með íslenskt vegabréf. Vinna þarf það í samvinnu við körfuknattleikssambönd heimaþjóða þeirra, í þessu tilfelli Slóveníu og Lettlands. Klippa: Baldur skilur ekkert í regluverkinu Samböndin gefa leyfi fyrir því að þeir skipti um þjóðerni innan körfuboltans og því næst þarf samþykki Alþjóðakörfuknattleikssambandsins, FIBA. Það fékkst ekki þó að þeir félagar hafi aldrei spilað A-landsleik fyrir fyrri þjóðir. „Þeir neita á þeim grundvelli að þessir leikmenn hafi spilað of marga leiki fyrir U20 landslið síns lands. Að þeir hafi spilað fleiri en fimm leiki. FIBA neitar þar af leiðandi umsókninni,“ segir Baldur Þór Ragnarsson, aðstoðarlandsliðsþjálfari, í samtali við Sýn. „Því er áfrýjað í aðra nefnd og þaðan kemur endanleg neitun. Ísland fær ekki að nota þessa tvo leikmenn í landsleikjum,“ bætir hann við. Jaka Brodnik æfði með landsliðinu í sumar en fór ekki á EuroBasket þar sem leyfi var ekki komið frá FIBA. Það er leyfi sem mun aldrei berast.VÍSIR Starfsfólk KKÍ og landsliðsþjálfararnir tóku tíðindunum eðlilega ekkert sérlega vel. Dæmi séu um að menn hafi spilað fyrir tvö A-landslið, og sérkennilegt sé að unglingalandsleikir fyrir mörgum árum síðan vegi svo þungt. „Maður hefur séð í gegnum tíðina menn að spila A-landsleiki og svo skipta um landslið. Auðvitað getum við spurt hvort við séum litli kallinn og sé verið að traðka á okkur. En þetta er niðurstaðan sem við erum með í höndunum og það er bara þannig,“ segir Baldur. Bandaríkjamaðurinn Jordan Loyd, sem fór illa með Ísland á EuroBasket í haust, gerði það með pólska landsliðinu. Loyd, sem varð NBA-meistari með Toronto Raptors árið 2019, hafði aldrei búið eða yfirhöfuð spilað körfubolta í Póllandi. Honum var afhentur ríkisborgararéttur eftir meiðsli Jeremy Sochan, leikmanns Póllands, skömmu fyrir EM og fékk leyfi frá FIBA á mettíma fyrir mótið. Mættu sama leikmanni með Slóvakíu og Þýskalandi Frjálslegar ferðir eru milli landsliða í handbolta en í fótbolta er regluverkið skýrt og ekki má spila fyrir tvær þjóðir nema í sérstökum undantekningatilfellum. Davis Geks fékk nokkuð óvænt ríkisborgararétt en hefur verið öflugur hjá Tindastóli síðustu ár.Vísir/Bára Dröfn Í fótbolta hafa unglingalandsleikir hins vegar engin áhrif á val leikmanna á A-landsliðum og til fjölmörg dæmi um leikmenn sem hafa spilað fyrir unglingalandslið evrópskrar stórþjóðar en A-landslið fyrrum nýlendu. „Mér persónulega finnst þetta mjög óljóst. Það er bara eins og þetta er. Eins og þegar Bandaríkjamenn fá vegabréf á einni viku og byrja að spila. Svo eru þetta leikmenn sem eru búnir að vera hérna í lengri tíma, þá sérstaklega Jaka, en er neitað um að spila. Auðvitað finnst manni það sérstakt,“ „Maður upplifði það fyrir nokkrum árum að leikmaður spilaði á móti okkur með Slóvakíu og spilaði svo á móti okkur með Þýskalandi. Þannig að klárlega er þetta óljóst. En þetta eru svörin sem sérsambandið hefur fengið,“ segir Baldur. Ísland mætir Litáen í undankeppni HM í Laugardalshöll á föstudagskvöldið klukkan 19:30.
Landslið karla í körfubolta KKÍ Ríkisborgararéttur Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Þýskaland - Fílabeinsströndin | Önnur sýning hjá Þjóðverjum? Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira