Affineva bar sigur úr býtum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 10:26 Þau mynda teymið Affineva sem bar sigur úr býtum. Eygló Gísladóttir Verkefnið Affineva bar sigur úr býtum í nýsköpunarkeppninni Gulleggið. Markmið Affineva er að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.
Verðlaunin voru afhent í gær á lokakeppni Gulleggsins en um er að ræða stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands. Tíu sprotateymi kynntu hugmyndir sínar fyrir áhorfendum og dómnefnd. Í ár tók þátt fjölbreyttur hópur teyma sem spannar allt frá líftækni og sjálfbærri orku yfir í stafrænar lausnir og nýjar leiðir til að nýta gögn, tækni og íslenskar auðlindir og samkeppnin var því mikil. Affineva hlaut tvær milljónir króna í verðlaun frá Landsbankanum en í öðru sæti var teymið IORDEN sem er með lausn sem nýtir gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda og bæta gæðaeftirlit hjá smærri matvælaframleiðendum. Þau fengu eina milljón króna í verðlaun. Norrestone hreppti þriðja sætið en verkefni þeirra gekk út á stafrænt vistkerfi fyrir skartgripi. „Teymin í Gullegginu í ár sýna enn og aftur hversu fjölbreytt og öflug nýsköpun er á Íslandi. Hér eru frumkvöðlar að leysa raunveruleg vandamál, skapa ný verðmæti og leggja sitt af mörkum til sjálfbærari framtíðar,“ er haft eftir Önnu Schalk Sóleyjardóttur, verkefnastjóra Gulleggsins, í fréttatilkynningu. Heiðursegg Gulleggsins var veitt fyrirtækinu Lavashow en hugmyndin á bak við fyrirtækið var meðal þeirra tíu hugmynda sem kepptu um Gulleggið árið 2016. Lavashow hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir að umbreyta náttúruöflunum í einstaka upplifun fyrir gesti, byggja upp sterkt vörumerki og skapa verðmæti bæði í ferðaþjónustu og skapandi greinum. „Með heiðursegginu er viðurkennt það mikla frumkvöðlastarf, úthald og hugrekki sem liggur að baki því að byggja upp fyrirtæki eins og Lavashow,“ segir í fréttatilkynningu. Þessi tíu teymi kepptust um Gulleggið. Affineva: Markmið Affineva er að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma. Araxni: Líftækniframleitt köngulóarsilki fyrir sjávarútveg, textíl og fleira. Vefjum nýja framtíð - úr silki ekki plasti. Dýragáttin: Dýragáttin er eins og Heilsuvera fyrir dýr. Þar er hægt að finna allar upplýsingar um bólusetningar, örmerkingar, dýralæknaheimsóknir og annað sem tengist dýrunum okkar. E-Lísa: E-Lísa dregur úr áhættu í jarðvarmaþróun og tryggir að borholur skili áreiðanlegum og fyrirsjáanlegum afköstum. IORDEN: Hagkvæmur og sjálfvirkur gæðastjóri sem gerir smærri matvælaframleiðendum kleift að vera með allt IORDEN. Le Bát: Afhendum sjávargögn á sjálfbæran máta Norrstone: Stafrænt vistkerfi fyrir vottun, tryggð viðskiptavina, tryggingar og endursölu skartgripa. Ókind: Ókind notar líftækni til að þróa nýtt efni úr íslenskri ull. Replay! The Musical: Söngleikja-og „hryntölvuleikur“ þar sem þú, leikmaðurinn, ferð með aðalhlutverkið. STRUX: Markmið STRUX er að einfalda og hraða ferli byggingarleyfa.
Nýsköpun Háskólar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Sjá meira