Uppgjörið: Haukar - ÍR 28-21 | Haukar of stór biti fyrir ÍR Hjörvar Ólafsson skrifar 28. febrúar 2026 20:06 Haukar eru bikarmeistarar í handbolta karla árið 2026. Vísir/Anton Brink Haukar urðu í kvöld bikarmeistarar í handbolta karla eftir sannfærandi 28-21 sigur liðsins gegn ÍR í úrslitaleik keppninnar í Kuehne+Nagel höllin að Ásvöllum. Þetta er í áttunda skiptið sem Haukar verða bikarmeistarar í karlaflokki í handbolta. Leikmenn Hauka tóku leikinn föstum tökum strax frá upphafi leiksins og ÍR-ingar þurftu að hafa gríðarlega mikið fyrir hverju marki sem þeir skoruðu. Varnarmúr Hauka var þéttur og þar fyrir aftan var Grétar Ari Guðjónsson í miklum ham. Grétar Ari varði 19 skot í leiknum, þar af eitt vítakast og var með rúmlega 50 prósent markvörslu. Lítið var skorað í upphafi leiks en Haukar byggðu þar hægt og rólega upp þægilegt forskot en staðan var 5-1 um miðbik fyrri hálfleiks. Grétar Ari Guðjónsson varði vel á bakvið þétta vörn Haukaliðsins. Vísir/Anton Brink Þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 14-6 Haukum í vil og staðan svört fyrir Breiðhyltinga. ÍR-ingum gekk betur að finna netmöskvana á marki Hauka í seinni hálfleik og Ólafur Rafn Gíslason átti fína innkomu í mark liðsins. Haukar hleyptu aftur á móti aldrei spennu í þennan leik og fóru að lokum með sjö marka sigur af hólmi og tryggðu sér fyrsta bikarmeistaratitil sinn í 12 ár. Þessi lið leiddu saman hesta sína árið 2014 og þar höfðu Haukar einnig betur. Össur Haraldsson, fyrirliði Hauka, fagnar marki með stuðningsmönnum liðsins. Vísir/Anton Brink Atvik leiksins Með hverju skotinu sem Grétar Ari varði og í hvert skipti sem árás leikmanna ÍR lenti á varnarvegg Hauka drógu þeir tennurnar úr leikmönnum ÍR-liðsins. Fögnuður Hauka innan vallar sem utan í lok leiks var ósvikinn og ljóst að hungrið í bikar eftir þurrð var gríðarlegt. Stjörnur og skúrkar Áðurnefndur Grétar reyndist ÍR-ingum einkar erfiður og Darri Aronsson var frábær í miðjublokk Hauka. Bróðir hans, Freyr, stýrði sóknarleik Hauka styrkri hendi en markaskorun liðsins dreifðist á margar hendur. Freyr og Birkir Snær Steinsson voru markahæstir með sex mörk hvor og Össur Haraldsson kom næstur með fjögur mörk. Adam Haukur Baumruk og Þráinn Orri Jónsson dreifðu svo álaginu sín á milli í hjarta varnarinn og sáu til þess að ákefðin í varnarleiknum minnkaði aldrei. Bernard Darkoh var óþreytandi við það að freista þess að brjóta vörn Hauka á bak aftur. Vísir/Anton Brink Bernard Darkoh fann oftast glufu á vörn Hauka og skoraði sjö mörk í leiknum og var atkvæðamestur hjá ÍR-liðinu sem getur gengið stolt frá borði frá þessum leik. Freyr Aronsson skorar eitt af mörkum sínum í leiknum. Vísir/Anton Brink Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir, Sigurður Hjörtur Þrastarson og Svavar Ólafur Pétursson, höfðu góð tök á þessum leik og létu hann flæða vel. Leyfðu hæfilega mikið og lögðu sitt að mörkum til þess að leikurinn var góð skemmtun. Þeir fá átta í einkunn fyrir sín störf. Stemming og umgjörð Það var fullt hús að Ásvöllum í kvöld og bæði lið fengu afskaplega góðan stuðning í þessum leik. Umgjörðin var til fyrirmyndar og allir sem komu að þessum leik voru handboltanum til sóma. Aron Rafn Eðvarðsson og Össur Haraldsson, fyrirliðar Hauka, lyfta bikarnum að leik loknum. Vísir/Anton Brink Haukar ÍR Powerade-bikarinn