Upp­gjör: ÍR-KA 32-31 | ÍR í bikarúrslit í fyrsta sinn í tólf ár

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Róbert Snær Örvarsson og félagar eru komnir í bikarúrslitaleikinn.
Róbert Snær Örvarsson og félagar eru komnir í bikarúrslitaleikinn. Vísir/Hulda Margrét

ÍR mun leika til úrslita um Powerade-bikarinn á laugardaginn. Varð það ljóst eftir hádramatískar lokamínútur í undanúrslitaviðureign liðsins gegn KA í kvöld. Lokatölur 32-31 þar sem sigurmarkið kom þegar aðeins þrjár sekúndur voru eftir af leiknum.

ÍR hóf leikinn af miklum krafti og var orkustigið hjá Reykvíkingum mun hærra en hjá þeim gulu að norðan. Staðan var 3-0 eftir um fimm mínútna leik. KA beit í kjölfarið aðeins frá sér og náði að minnka muninn en ÍR hélt þó alltaf í forystuna.

Snemma leiks þurfti Baldur Fritz Bjarnason, leikstjórnandi og jafnframt langbesti leikmaður ÍR, að fara meiddur af velli. Liðsfélagar hans virtust þó tvíeflast við brotthvarf hans og þá sérstaklega Jökull Blöndal Björnsson sem skoraði sex mörk í fyrri hálfleik.

KA tapaði boltanum átta sinnum í fyrri hálfleiknum sem reyndist dýrt fyrir liðið sem var sífellt að reyna að elta forystu ÍR. Virtist fimm-einn vörn ÍR hafa mikil áhrif á flæðið í sóknarleik KA. Staðan í hálfleik var 16-13 fyrir ÍR.

Líkt og í fyrri hálfleik hófu ÍR þann seinni mun betur og komu sér í fjögurra marka forystu snemma. KA-menn minnkuðu þó muninn jafn harðan og var staðan 21-20, ÍR í vil, eftir tíu mínútur í seinni hálfleik.

Þá tók ÍR aftur algjörlega yfir leikinn og staðan var 27-22 þegar korter var eftir af leiknum. KA neitaði þó að játa sig sigrað og sprengdi leikinn upp á lokakaflanum. Liðið nýtti sér rándýra tveggja mínútna brottvísun Jökuls Blöndals Björnssonar, markahæsta manns ÍR í leiknum, þegar aðeins fimm mínútur voru eftir og kom sér yfir í leiknum, 29-30.

Þegar mínúta var eftir af leiknum var staðan jöfn, 31-31. Fékk Giorgi Arvelodi Dikhaminjia hornamaður KA þá þrjá sénsa til þess að koma sínum mönnum yfir allt í sömu sókninni. Brást honum hins vegar bogalistin í öllum skotunum og var Alexander Ásgrímsson markvörður ÍR með hann í vasanum.

Í lokasókn ÍR gerðist margt og mikið. Daði Jónsson, leikmaður KA, fékk þá rautt fyrir að ýta Jökli í loftið og stuttu seinna fékk Bjarni Ófeigur tveggja mínútna brottvísun, einnig í liði KA. KA-menn tveimur færri og lítið eftir.

Endaði sóknin með því að fyrirliði ÍR, Sveinn Brynjar Agnarsson, komst inn úr hægra horninu og skoraði með föstu skoti sem reyndist sigurmark leiksins, enda aðeins þrjár sekúndur eftir af leiknum þegar boltinn söng í netmöskvunum.

Atvik leiksins

Mörg risaatvik urðu í þessum leik. Meiðsli Baldurs Fritz og færaklúður Giorgi Arvelodi Dikhaminjia voru ein risaatvik leiksins, en sigurmarkið hans Sveins Brynjars. Allt ætlaði um koll að keyra hjá ÍR-ingum í stúkunni á þeim tímapunkti.

Stjörnur og skúrkar

Jökull Blöndal Björnsson átti stórleik hjá ÍR og skoraði tíu mörk ásamt því að gefa fjórar stoðsendingar. Það verður þó að hrósa öllu ÍR-liðinu hér, hvernig allir leikmenn liðsins stigu upp í fjarveru síns besta leikmanns og unnu sætan sigur. Þess má geta að ÍR hefur aðeins unnið tvo leiki af 19 í Olís-deildinni í vetur en eru nú komnir í úrslitaleik Powerade-bikarsins.

Giorgi Arvelodi Dikhaminjia er því miður skúrkurinn. Rétt rúm 50% nýting úr hægra horninu er mjög slappt fyrir atvinnumann, sérstaklega þegar litið er til þess að hann fékk dauðafæri til þess að koma KA í bílstjórasætið undir lokin í þrígang.

Dómarar

Þorvar Bjarmi Harðarson og Árni Snær Magnússon dæmdu þennan leik svo gott sem óaðfinnanlega. Ekkert út á þá að kvarta.

Stemning og umgjörð

Var þokkaleg mæting á þennan leik og mikil læti í þeim sem létu sjá sig. Erfitt að koma beint á eftir Hafnarfjarðarslaginum þar sem húsið var troðfullt. Umgjörðin hjá HSÍ í kringum þennan leik mjög vönduð. ÍR-ingar í stúkunni trylltust svo þegar leiknum lauk, enda frábær árangur hjá þeirra mönnum.

Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA.Vísir/Hulda Margrét

Andri Snær Stefánsson: „Þetta var lélegasti leikurinn okkar í langan tíma“

„Þetta er bara hrikalega svekkjandi og við bara náðum ekki taktinum í okkar leik. Við náðum ekki control á leiknum fyrr enn allt of seint. Ég er drullu svekktur, en á sama tíma vil ég óska ÍR til hamingju. Þeir voru svakalega öflugir í dag og þetta er þeirra besti leikur í vetur,“ sagði Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, eftir leik.

„Við byrjuðum sóknarlega afleitlega og vorum bara of hikandi og hægir og ragir. Varnarlega þá lentum við í miklum vandræðum með Jökul sem skaut okkur vel í kaf. Þeir skora svo líka mörg mörk þegar hendin er komin upp og við erum að standa vel, en svo endar þetta á að leka inn. Við erum samt komnir yfir og fáum fjögur dauðafæri til þess að komast aftur yfir þegar ein og hálf mínúta er eftir. Þannig að við getum verið virkilega súrir að hafa ekki lokað leiknum þá.“

Aðspurður hvort það hafi haft áhrif á leikplan KA að ÍR missti Baldur Fritz snemma úr leik, sagðist hann svo ekki vera.

„Ég get ekki sagt það. Það voru bara aðrir sem stigu upp hjá þeim. Þeir hittu bara algjörlega á sinn dag og ætla ég ekki að taka neitt af þeim, en við eigum bara að gera betur. Við vorum lélegir í dag og þetta var lélegasti leikurinn okkar í langan tíma og það er það sem svíður rosalega í svona undanúrslitum.“

Sveinn Brynjar Agnarsson skoraði sigurmarkið í kvöld.Vísir/ Hulda Margrét

Sveinn Brynjar Agnarsson: „Ég ætlaði bara að hamra á hann“

„Þetta er geggjað. Við vissum reyndar allan tímann að við myndum vinna en þetta er bara geggjað,“ sagði Sveinn Brynjar Agnarsson, fyrirliði ÍR, að leikslokum.

Sveinn Brynjar fékk lokafæri leiksins og tryggði sigurinn með því að skora þar á Ágúst Elí, markvörð KA.

„Ágúst var búinn að vera að benda mér á að fara þarna inn, þannig að ég ætlaði bara að hamra á hann. Síðan kæmi bara í ljós hvort ég myndi skora eða ekki.“

Sveinn segir taugarnar hafa verið góðar undir lok leiks.

„Nei, nei, þetta er bara svona. Stundum er maður yfir og stundum undir. Maður verður bara að halda áfram að spila sinn leik. Það gerist bara það sem gerist.“

Sömuleiðis taldi hann fjarveru Baldurs Fritz hafa haft lítil áhrif á leik síns liðs.

„Nei, nei. Við erum bara með leikplan og við höldum okkur við það hvort sem Baldur er með eða ekki, það skiptir engu máli. Við bara gerum okkar.“

Fyrirliðinn hvetur alla ÍR-inga til þess að mæta á úrslitaleikinn á laugardaginn.

„Þetta verður hörkubarátta og ég hvet alla ÍR-inga að mæta og styðja okkur. Það þýðir ekkert annað.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira