Salka Sól látin fara Freyja Þórisdóttir skrifar 1. mars 2026 11:09 Salka Sól hefur staðið vaktina á Rás 2 um helgar síðan árið 2021. Vísir/Vilhelm Sölku Sól hefur verið gert að hætta með útvarpsþættina sína á Rás 2 eftir um sex ára skeið. Síðasta þættinum var útvarpað í morgun.
Í samtali við fréttastofu Vísis segist Salka vera virkilega svekkt en hún greinir einnig frá ákvörðuninni á Facebook. „Ég hefði svo innilega viljað halda áfram að vakna með ykkur um helgar en ákvörðunin um að þættinum yrði ekki framhaldið á dagskrá Rásar 2 var ekki mín. Takk fyrir að hlusta, takk fyrir öll skilaboðin og hlýleg orð í gegnum tíðina,“ segir Salka í færslu á Facebook. Í stað Sölku verður Freyr Eyjólfsson áfram í útvarpinu en hans þáttur verður lengdur í kjölfar þess að þátturinn hennar Sölku rennur sitt skeið. Þáttur Freys Eyjólfssonar verður lengdur í kjölfar ákvörðunarinnar.Vísir/Einar Þættirnir hófu göngu sína árið 2021 og í morgun var þeim síðasta útvarpað en hann var sá 220. í röðinni. Fyrst um sinn voru þættirnir á laugardagsmorgnum en voru seinna færðir yfir á sunnudaga. Samkvæmt fjölda ummæla undir færslu Sölku á Facebook var stór hópur fólks búinn að gera það að vana sínum að vakna með Sölku á sunnudagsmorgnum. „Það voru búnar að vera breytingar í loftinu en ég var ekki 100 prósent á því hvort þátturinn yrði bara færður eða styttur eða hvað,“ segir Salka í samtali við fréttastofu. „En svo var tekin ákvörðun að ég myndi hætta um mánaðamótin.“ Hún bætir við að það hafi verið rætt að minnka verktakavinnu um helgar og að þetta hafi á endanum verið niðurskurður sem varð til þess að ákvörðunin var tekin að hætta með þáttinn. „Þetta kom mjög á óvart þessi ákvörðun, ég er mjög leið yfir þessu. Ég veit að þetta var vinsæll þáttur og fólk er strax byrjað að bregðast við þessu og senda tölvupósta.“ Salka segir einnig frá því að hún hafi lengi haft áhuga á því að vinna í útvarpi og að það sé sá miðill sem hafi heillað hana mest í gegnum tíðina. Hún segir einnig frá því í samtali við fréttastofu að mikil vinna hafi verið lögð í að gera þáttinn sem allra bestan fyrir hlustendur. „Mér fannst ég vera að taka aðeins öðruvísi nálgun á útvarp heldur en hefur oft verið gert. Allir eru núna með alla tónlist í vasanum og geta hlustað á hvað sem er hvenær sem er. Þá hugsaði ég með mér hvernig ég gæti gert fyrir útvarp og reyndi að leggja mig fram við að fræða fólk og spila tónlist sem að það vissi ekki að það langaði að hlusta á.“ Salka Sól hefur komið víða að en hún braust fram á sjónarsviðið með hljómsveitinni AmabAdamA árið 2013.Kristinn R. Kristinsson Þættirnir voru oftar en ekki með ákveðið þema en Salka segir það hafa verið hluta af hugmyndinni um að vekja áhuga fólks á því að hlusta á útvarp frekar en tónlist í símanum. „Þegar fólk heyrir af ákveðnu þema fer það oft að hugsa „já bíddu, gæti verið að þetta lag komi þá í þættinum?“ og þannig get ég búið til forvitni svo það sé enn þá þess virði að hlusta á útvarpið.“
Tónlist Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Vistaskipti Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Fundu ástina á Domino's Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Fundu ástina á Domino's Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“