Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 1. mars 2026 13:12 Albert Jónsson var sendiherra í Bandaríkjunum árin 2006 til 2009, og í Rússlandi frá 2011 til 2016. Vísir/Vilhelm Engin skipulögð stjórnarandstaða er til staðar í Íran segir fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum. Útilokað sé að steypa klerkastjórninnni með einungis loftárásum.
Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa gert árásir í Teheran í morgun og þá hafa Íranir skotið fjölda flugskeyta að Miðausturlöndum. Þau hafa verið skotin niður af lofvarnarkerfum en brak sem fallið hefur til jarðar hefur valdið slysum á fólki og einhverri eyðileggingu. „Þarna eru bara algjörir yfirburðir Bandaríkjanna og Ísraels á ferðinni. Íranir eiga enn flugskeyti og geta haldið sínum loftárásum eitthvað áfram og það er alltaf hætta á því að einhver þeirra nái í gegn og valdi manntjóni. En í aðalatriðum gengur þetta held ég samkvæmt áætlun hjá Bandaríkjunum og Ísrael,“ segir Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og varnarmálum, um hernaðaraðgerðir helgarinnar. Staðfest var í nótt að æðstiklerkurinn Ayatollah Ali Khamenei hafi fallið í árás gærdagsins. Albert telur að það sé þó ansi róttækt markmið að ætla steypa klerkastjórninni og ráða niðurlögum íranska byltingavarðarins með loftárásum. „Ég held að það sé útilokað og ég held að flestir séu á þeirri skoðun. Það þarf meira til. Það er hernaðarlegt afrek út af fyrir sig að fella æðstaklerkinn en það dugar ekki til þess að fella stjórnina. Bandaríkjaforseti hefur sagt almenningi í landinu að grípa tækifærið sem er að skapast og ég er viss um að almenningur myndi feginn vilja gera það og losna við stjórnina. En vandinn er sá að það er engin skipulögð stjórnarandstaða í Íran til þess að taka yfir. Almenningur gerir það ekki, ekki fólkið úti á götu. Þannig það er veiki hlekkurinn í planinu og það er í rauninni ekkert plan um hvað gerist eftir þessar loftárásir.“ Bandaríkjaforseti hvatti írönsku þjóðina til þess að grípa tækifærið.skjáskot/Truth social Hann telur ólíklegt að átökin breiðist út. „Flugskeytaárásir Írana á Ísrael og önnur ríki á svæðinu virðast ekki bera árangur. Flugskeytin eru bara einfaldlega skotin niður. Það er reyndar brak sem fellur úr þessu sem getur valdið manntjóni, en það verður aldrei umfangsmikið og þessi átök ættu ekki að breiðast út í skilningi milliríkjastríðs,“ segir Albert. Íranir og bandamenn þeirra séu í of veikri stöðu. „Bandamenn Írana eru Rússar og Kínverjar en þeir munu ekki lyfta litla fingri til að aðstoða Íran hernaðarlega. Rússar og Kínverjar hafa einfaldlega ekki burði til þess á svæðinu. Íranar gætu hefnt fyrir Khamenei og hefnt fyrir loftárásirnar með því því að stunda hryðjuverk eða beita sér fyrir hryðjuverkum í öðrum ríkjum í Mið-Austurlöndum og jafnvel víðar. Það er ekki hægt að útiloka það sem skiptir mestu máli er að það eru ekki líkur á að það verði milliríkjaátök í Mið-Austurlöndum út af þessu.“
Íran Bandaríkin Ísrael Öryggis- og varnarmál Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira