Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Sindri Sverrisson skrifar 2. mars 2026 21:01 Glódís Perla Viggósdóttir vill sjá sama metnað í kringum landsliðið eins og leikmenn liðsins búa yfir. Getty/Noemi Llamas Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, kallar eftir því að meira fé verði lagt í liðið svo að það standi ekki höllum fæti gagnvart keppinautum sínum um sæti á HM.
Glódís og stöllur í íslenska landsliðinu eru að undirbúa sig fyrir sannkallaða stórleiki því þær mæta heimsmeisturum Spánar í Castellon annað kvöld, og svo Evrópumeisturum Englands í hádeginu á laugardag. Þetta eru fyrstu leikir Íslands í undankeppni HM 2027, sem fram fer í Brasilíu, og má segja að íslenska liðið mæti verr undirbúið en keppinautarnir. Liðið var nefnilega það eina í sínum riðli (fjórða liðið í riðlinum er Úkraína) sem ekki nýtti síðasta opinbera landsleikjaglugga, um mánaðamótin nóvember-desember. Glódís segir ríkan vilja hafa verið til þess hjá leikmönnum að nýta gluggann til undirbúnings og bendir á að sömuleiðis hafi ekki allir leyfilegir dagar verið nýttir núna, í undirbúningnum á Spáni fyrir leikinn á morgun. „Auðvitað er það gríðarlega svekkjandi að við höfum ekki nýtt seinasta landsliðsglugga. Það er eitthvað sem að okkur langaði til að gera sem hópur og hefði auðvitað verið frábært að fá meiri undirbúning þar sem við erum að fara í gríðarlega sterkan riðil og við erum að reyna að komast á HM,“ sagði Glódís í viðtali við Fótbolta.net í dag. Hún benti á að kvennalandslið Íslands hefði aldrei komist á HM og til þess að ná nýjum áföngum þyrfti stundum að gera nýja hluti. Þurfi fjármagn til að vera í hæsta gæðaflokki Knattspyrnusamband Íslands hefur sagt að vegna fjárskorts hafi þurft að skera niður í landsliðsverkefnum á síðasta ári, bæði hjá karla- og kvennalandsliðinu sem og yngri landsliðum. Sambandið hefur einnig ítrekað kallað eftir meira fé úr Afrekssjóði ÍSÍ en þaðan fékk KSÍ lengi vel ekki krónu, ár eftir ár, en hefur svo fengið takmarkaðan styrk úr sjóðnum síðustu tvö ár, eða 24,6 milljónir hvort ár. „Það er auðvitað gríðarlega svekkjandi að fá ekki landsleikjaglugga fyrir áramót og svo aftur núna að nýta ekki alla dagana er auðvitað svekkjandi. Þetta er eitthvað sem að við þurfum að skoða sem þjóð, ef við viljum halda áfram að vera í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta og við verðum að finna lausnir til að við getum fengið sama undirbúning og aðrar þjóðir. Jafnvel að gera það ennþá betur heldur en hinar þjóðirnar,“ sagði Glódís en viðtalið við hana má finna hér. Leikur Íslands við stórlið Spánar hefst klukkan 19 að íslensku tíma annað kvöld.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira