Ég heyri og hlusta: Um heyrnarskimun í grunnskólum Alma D. Möller skrifar 3. mars 2026 16:30 Í skoðunargreinum Vísis í dag er réttilega vakin athygli á mikilvægi heyrnar fyrir þroska og velferð barna okkar. Í greinum á borð við „Týndu börnin“ og „Heyrnin tengir okkur“ hafa sérfræðingar og aðstandendur lýst áhyggjum af því að börn með heyrnarskerðingu fái ekki þá þjónustu sem þau þurfa á að halda. Heilbrigðisráðuneytið tekur undir þessi sjónarmið; heyrn er ekki aðeins eitt af okkar mikilvægustu skynfærum heldur grundvöllur málþroska, náms og félagslegrar þátttöku. Það liggja fyrir rök um að innleiða skipulagða heyrnarskimun í skólaheilsugæslu. Starfshópur embættis landlæknis sem ég fól að koma með ráðleggingar um slíka skimun og framkvæmd hennar skilar niðurstöðu innan skamms og ég vænti góðs af störfum hópsins. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin leggur ríka áherslu á að heyrn sé grundvallarforsenda samskipta, málþroska og náms. Þótt nýburaskimun sé öflugt tæki til að greina meðfædda heyrnarskerðingu, dugar hún ekki ein og sér til að tryggja velferð barna í gegnum skólagönguna. Alþjóðlegar rannsóknir sýna að um 15% barna á skólaaldri glíma við einhvers konar heyrnarskerðingu (væga, einhliða eða hátíðniskerðingu) sem getur hamlað námi og félagslegri þátttöku. Samkvæmt leiðbeiningum helstu fagaðila, svo sem American Academy of Pediatrics (AAP) og American Speech-Language-Hearing Association (ASHA), er mælt með skipulagðri skimun við 6 ára aldur vegna eftirfarandi þátta: Síðbúin skerðing: Ákveðnar gerðir heyrnarskerðingar, bæði erfðafræðilegar og áunnar (t.d. eftir sýkingar), koma ekki fram fyrr en á barnsaldri. Breytt hljóðumhverfi: Við upphaf grunnskóla eykst krafan um hlustun í krefjandi umhverfi þar sem bakgrunnshávaði er mikill. Barn sem hefur náð að fóta sig í leikskóla getur mætt miklum erfiðleikum þegar reynir á flókna úrvinnslu í skólastofu. Vökvi í eyrum: Langvarandi vökvasöfnun í miðeyra er algeng á þessum aldri. Hún veldur sveiflukenndri heyrnarskerðingu sem getur tafið lestrar- og málþroska ef hún er ekki greind og meðhöndluð. Innleiðing á skipulegri skimun þegar vel tekst til getur leitt af sér: Bættan námsárangur: Ógreind heyrnarskerðing tengist marktækt lakari árangri í lestri og stærðfræði. Snemmtæk greining lágmarkar þennan mun. Félagslega vellíðan: Börn sem heyra illa verða fyrr þreytt og eiga á hættu að einangrast félagslega eða sýna pirring vegna þess að þau missa af samræðum. Fækkun ranggreininga: Skert heyrn getur birst sem einbeitingarskortur eða óhlýðni. Með skimun má koma í veg fyrir að börn séu ranglega greind með ADHD eða hegðunarerfiðleika þegar líffræðileg orsök liggur að baki. Nú eru til umsagnar í samráðsgátt drög að reglugerð um skólaheilsugæslu. Sérstök reglugerð um skólaheilsugæslu er markvert nýmæli og í samræmi við áherslumál mín um þjónustu við börn. Í reglugerðardrögunum er ekki tilgreint fyrir hvaða þáttum eigi að skima en ég tel að heyrnarskimun eigi að vera þeirra á meðal. Ég hvet hagsmunaaðila og almenning til að kynna sér reglugerðardrögin og taka þátt í því samráði en frestur til að skila inn umsögnum rennur út 10. mars næstkomandi. Höfundur er heilbrigðisráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma D. Möller Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar