Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja Jakob Bjarnar skrifar 3. mars 2026 16:30 Elliði segir þetta líklega í fyrsta skipti í sögunni sem einhver er látinn sverja af sér afskipti af bæjarmálapólitík, en líklega sé sú stund upp runnin hvað sig og Vestmannaeyjar varði. vísir/anton brink Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi segist styðja lista Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi af heilum hug og hann lofar því að hann muni ekki flytja aftur til Vestmannaeyja en orðrómur um að hann blandist í bæjarmálapólitíkina þar hefur lifað góðu lífi.
Elliði var hress þegar Vísir heyrði í honum nú fyrir stundu. Listi Sjálfstæðisflokksins var kynntur í gær og er mjög líkur þeim sem var fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar. Elliði var ráðinn af meirihlutanum í Ölfusi til að gegna stöðu bæjarstjóra en hann segir ekkert ákveðið þar um. Hann segir listann glæsilegan og hann hafi verið kynntur á fjölmennasta fundi Sjálfstæðisflokksins þar í byggð í sögunni. Styður lista Sjálfstæðismanna af heilum hug „Ég styð þennan lista og hvern einasta einstakling sem á honum er eindregið. Og mun gefa hverja örðu af frítíma til að hjálpa þeim í kosningum,“ segir Elliði. Ekki hefur þó verið gengið frá því að Elliði verði bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins. Það er einfaldlega ófrágengið, að sögn hans. „Ég er ekki einu sinni farinn að ræða þetta við framboðslistann. Við eigum þetta samtal fund á morgun. Þegar maður er búinn að vera í þessu í tuttugu ár veit maður að lífið er stutt og tækifærin mörg. Það er ekkert víst að áherslur fari saman. Þetta er mikil skuldbinding og við viljum taka þetta samtal. Við tökum engu sem gefnu. Mínar höfuðáherslur eru, ég hef aldrei rekið sveitarfélag í mínus og ég vil að þær áherslur verði eftir sem áður uppi.“ Þannig mun þetta liggja fyrir á morgun. Taugaveiklun gagnvart Elliða og Eyjum Víkur þá sögunni að Eyjum og væringum þar milli fylkinga Sjálfstæðismanna þar. Þrálátur og hávær orðrómur er uppi um að þar vinni Elliði bak við tjöldin. Fyrir liggur að þar munu takast á um efsta sætið Eyþór Harðarson, sem er nú efsti maður á lista Sjálfstæðismanna, og svo Trausti Hjaltason. Eyþór hefur talað fyrir sameiningu Sjálfstæðismanna við H-listann. Trausti er hins vegar talinn í vinfengi við Elliða Vignisson, bæjarstjóra í Ölfusi sem um árabil var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, sem er ekki enn hættur að skipta sér af bæjarmálapólitíkinni í Eyjum. Er þetta sannleikanum samkvæmt, ert þú hugsanlegt bæjarstjóraefni í Eyjum? „Það eina sem ég held að ég geti sagt með fullri vissu er að ég er ekki að flytja til Vestmannaeyja, það er hægt að taka það úr myndinni,“ segir Elliði sem veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta við spurningunni. „Við höldum heimili þar en einhvern tíma hlýtur þessari taugaveiklun gagnvart mér og bæjarmálapóltíkinni í Eyjum að ljúka. Ég er ekki viss um að það hafi áður gerst að einstaklingur hafi áður þurft að gefa út það loforð að hann ætli ekki að flytja eitthvað en það getur vel verið að sú staða sé komin upp gagnvart Vestmannaeyjum og mér,“ segir Elliði Vignisson.
Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vestmannaeyjar Ölfus Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira