Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Jón Þór Stefánsson skrifar 3. mars 2026 23:25 Sigurður Hannesson ræddi áhrif stríðsins í kvöldfréttum Sýnar. Vísir/Vilhelm/EPA Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að Íslendingar ættu ekki að verða mjög varir við áhrif stríðsins sem nú geysar í Mið-Austurlöndum á allra næstu dögum. Hins vegar reiði verðmætasköpun bæði hér og annars staðar sig mjög á ólíu og því gætu áhrif til lengri tíma verið meiri. „
Stríðsátökin eru sannarlega alvarleg, og vonandi breiðast þau ekki frekar út en orðið er. Þarna er mikið í húfi, því stór hluti olíuframleiðslu í heiminum er á þessu svæði,“ sagði hann í kvöldfréttum Sýnar. „Olía er auðvitað notuð í mjög margt. Samgöngur er mjög háðar olíu: skipaflutningar, flug og bílaumferð. En hún er líka notuð í margvíslegar vörur, þannig að röskun á áfangakeðjum getur haft keðjuverkandi áhrif, svo sannarlega. Hún getur haft áhrif á eftirspurn á heimsvísu og verð, til hækkunar.“ Hvaða áhrif getur þetta haft á okkur á Íslandi? „Til skamms tíma þá bíðum við og sjáum, og vonandi hefur þetta ekki mikil áhrif næstu dagana og vikurnar. En til lengri tíma litið getur þetta ýkt enn frekar þá stöðu sem er uppi í hagkerfinu. Það er að segja: Valdið enn þá meiri kólnun, og viðhaldið hárri verðbólgu í enn lengri tíma.“ Verðbólgan gæti því hækkað enn meira. „Það gæti farið þannig, ef þetta ástand dregst eitthvað á langinn. Stjórnvöld verða auðvitað að fylgjast mjög grannt með þróun mála þarna. Þau og Seðlabankinn geta auðvitað ekki stýrt því hvernig olíuverð þróast í heiminum.“ Sigurður sagði að stríðið geti fengið Íslendinga til að huga að mörgu, líkt og að orkuskiptum. „Við erum mjög háð olíu hér á Íslandi. Við reiðum okkur mjög á hana,“ sagði hann. „Verðmætasköpun byggir að talsverðu leyti á notkun olíu. Þetta undirstrikar mjög orkuöryggi og mikilvægi þess fyrir okkur, við þurfum að huga meira að því, bæði til skemmri og lengri tíma. Orkuskipti hafa verið mikið til umfjöllunar síðustu árin. Við þurfum þar að gefa í ef eitthvað er, og huga að olíubyrgðum.“
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Verðlag Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira