Myndband af Rodrygo að nudda hné Ronaldo fær nýja þýðingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 11:01 Rodrygo spilar ekki fleiri leiki með Real Madrid á þessu tímabili og mögulega ekki aftur fyrr en á næsta ári. Getty/ Angel Martinez Brasilíski knattspyrnumaðurinn Rodrygo hjá Real Madrid sleit krossband í grannaslagnum gegn Getafe í spænsku deildinni á mánudaginn en það þýðir að brasilíska stjarnan kemst ekki á HM í sumar.
Rodrygo kom inn á sem varamaður í hálfleik gegn Getafe. Hann meiddist fljótlega en hélt áfram að spila í hálftíma eftir það. Það kom því flestum mikið á óvart þegar læknateymi félagsins staðfesti að leikmaðurinn væri með slitið krossband. „Eftir rannsóknir sem læknateymi okkar framkvæmdi í dag hefur Rodrygo verið greindur með slitið krossband og liðþófa,“ skrifaði Real Madrid á miðla sína. View this post on Instagram A post shared by Goal (@goal) Rodrygo var talinn líklegur kandídat í HM-hóp Brasilíu í sumar en hnémeiðsli hans eru sögð svo alvarleg að hann mun varla spila aftur árið 2026. Því lítur út fyrir að hann muni einnig missa af stórum hluta næsta tímabils. Þegar fréttir bárust af alvarleika meiðslanna voru menn fljótir að rifja upp myndband af Rodrygo nudda hné hins brasilíska Ronaldo. Ronaldo var besti fótboltamaður heims þegar hann sleit fyrst krossband í hné og var aldrei alveg sami leikmaðurinn vegna hnévandamála sinna en hnémeiðsli eltu hann út allan ferilinn. Rodrygo var auðvitað að hugsa um að fá eitthvað af Ronaldo-göldrunum í sína fætur enda var hann ekki kallaður „O Fenômeno“ eða „Fyrirbærið“ af ástæðulausu. Áður en hann meiddist fyrst hafði Ronaldo tvisvar verið kosinn besti leikmaður heims af FIFA, stórkostlegur leikmaður sem hafði blómstrað bæði hjá Barcelona og Inter Milan. Í stað þess að ná sér í galdrana úr fótum Ronaldo lítur nú út fyrir að Rodrygo hafi náð sér í eitthvað annað og miklu verra í staðinn. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc)
Spænski boltinn Real Madrid CF HM 2026 í fótbolta Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fór grátandi af velli Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Fleiri fréttir Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Sjá meira