Með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð Lovísa Arnardóttir skrifar 4. mars 2026 09:22 Áreksturinn varð á hringveginum milli Djúpavogs og Breiðdalsvíkur. Vísir/Vilhelm Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur þá sem flytja inn ökutæki til að flytja ekki inn bíla sem eru án loftpúða fyrir farþega í framsæti. Í nýrri skýrslu nefndarinnar um banaslys við Kross í Berufirði í mars í fyrra segir að meginorsök slyssins hafi verið að öðrum bílnum hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming og að ökumaður hafi verið með skerta athygli. Ökumaður hafi líklega ekki gert sér grein fyrir því að hann væri að aka inn á rangan vegarhelming. Í skýrslunni, sem var birt á vef nefndarinnar í vikunni, kemur fram að ökumaðurinn hafi verið með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð og það sé önnur orsök slyssins. Í skýrslunni kemur einnig fram að bílunum hafi báðum verið ekið of hratt og yfir leyfðum hámarkshraða. Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa. Ökumaður Mercedes Benz-bifreiðar lést í slysinu. Einn farþegi var í framsæti Mercedes Benz-bifreiðarinnar og slasaðist hann alvarlega. Ökumaður og farþegi Volkswagen Caddy-sendibifreiðar slösuðust einnig alvarlega. Samkvæmt skýrslunni voru þau öll í bílbelti þegar slysið átti sér stað um miðjan dag og var niðurstaða áfengis- og lyfjarannsókna neikvæð. Vegurinn var þurr þegar slysið varð og dagsbirta. Hægviðri var og hiti 2°C. Í skýrslunni kemur fram að slysið hafi orðið á hringvegi um Ísland sem telst vera stofnvegur. Samkvæmt talningum var ársdagsumferð á þessum vegarkafla 390 bílar á sólarhring árið 2024. Fram kom í fréttum um slysið í fyrra að í öðrum bílnum hefðu verið erlendir ferðamenn og Íslendingar í hinum. Karlmaðurinn sem lést var Íslendingur og var á áttræðisaldri. Þrír fluttir með þyrlu Tilkynning um slysið kom til Neyðarlínunnar klukkan 11:45 og var það tilkynnt til lögreglu. Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar tilkynnti Rannsóknarnefnd samgönguslysa um slysið klukkan 12:28. Ökumaður Volkswagen Caddy-bifreiðarinnar og farþegar í báðum bifreiðunum voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Báðir bílarnir voru óökuhæfir eftir áreksturinn en samkvæmt skýrslunni var ekkert í niðurstöðum bíltæknirannsóknanna sem benti til þess að rekja mætti orsakir slyssins til ástands bifreiðanna. Báðir bílar voru með gildar skoðanir. Í Volkswagen Caddy-sendibifreiðinni var búið að útbúa svefn- og eldunaraðstöðu aftan í. Farþegamegin í bílnum var ekki loftpúði samkvæmt skýrslunni og auk þess var búið að fjarlægja gler úr skilrúmi til að tryggja flóttaleið. Titringur eða riffluhávaði hefði vakið athygli Niðurstaða skýrslunnar er sömuleiðis að ökumaður Mercedes Benz-fólksbifreiðarinnar hafi sennilega ekki orðið var við að hann ók yfir á vinstri vegarhelming. Vegurinn liggi í hægri beygju rétt fyrir slysstað. Engar hraðabreytingar hafi verið gerðar á bifreiðinni fyrir slysið og engin ummerki um hemlun eða viðbrögð ökumanns á slysstað. Í skýrslunni kemur fram að á vegarkaflanum hafi hvorki verið fræstar né valtaðar rifflur í yfirborði eftir miðlínu vegar eða meðfram vegkanti, enda ekki mögulegt að fræsa eða valta rifflur í vegi með klæðingu. Mögulegt sé að riffluhávaði og titringur hefði vakið athygli ökumanns Mercedes Benz-bifreiðarinnar þegar henni var ekið yfir miðlínu ef rifflur hefðu verið til staðar á veginum. Að sögn farþega í bifreiðinni hófst aksturinn um 15 mínútum fyrir slysið. Ökumaður hafi undirbúið sig og hafi ekki verið þreyttur fyrir aksturinn. Fyrir lá að aka bifreiðinni í 5 til 6 klukkustundir. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að samkvæmt frásögnum bæði ökumanns og farþega Volkswagen Caddy-sendibifreiðarinnar hafi bílnum verið ekið á réttum vegarhelming þegar bifreið kom á móti, inn á miðjum veginum, og stefndi inn á gagnstæðan vegarhelming. Þannig hafi Mercedes Benz-bifreiðin haldið beinni stefnu þrátt fyrir að vera á leið úr mjúkri hægri beygju. Samkvæmt skýrslunni hafði ökumaður Volkswagen-bílsins þá áttað sig á því hvað væri að gerast og náði að hemla rétt áður en áreksturinn varð og reyndi að sveigja frá á nánast sömu stund og áreksturinn varð. Engin ummerki um hemlun Mercedes Benz-bifreiðarinnar sáust á slysstað. Farþegi Mercedes Benz-bifreiðarinnar slasaðist alvarlega og mundi ekkert frá slysinu eða aðdraganda þess. Frekar að flytja inn bíla með loftpúðum Niðurstaða skýrslunnar er því að meginorsök slyssins sé að öðrum bílnum hafi verið ekið inn á rangan vegarhelming og að ökumaðurinn hafi verið með skerta athygli. Í skýrslunni er að lokum mikilvæg ábending til bílainnflytjenda um að flytja ekki inn bíla sem ekki eru með loftpúðum fyrir farþega í framsæti. Samgönguslys Múlaþing Fjarðabyggð Lögreglumál Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira
Rannsóknarnefnd samgönguslysa starfar samkvæmt lögum um rannsókn samgönguslysa. Markmið laganna er að fækka slysum og auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir. Rannsókn samkvæmt lögunum skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir samgönguslysa og samgönguatvika, en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga úr hættu á sams konar slysum og atvikum og afleiðingum sambærilegra slysa.
Samgönguslys Múlaþing Fjarðabyggð Lögreglumál Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira