Handbolti

„Við ætlum að spóla upp þessa brekku“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Arnar Pétursson segir liðið hafa tekið miklum framförum frá síðustu leikjum í undankeppni EM.
Arnar Pétursson segir liðið hafa tekið miklum framförum frá síðustu leikjum í undankeppni EM. Vísir / Hulda Margrét

Ísland mætir Svartfjallalandi í undankeppni EM í handbolta í kvöld og ytra á sunnudag. Landsliðsþjálfarinn segir laskað liðið ætla að spóla upp brekkuna sem það er komið í.

Stelpurnar okkar eru strax komnar í frekar slæma stöðu í undankeppninni eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum gegn Færeyjum og Portúgal. Nú er það svo Svartfjallaland, sem er fyrir fram skrifað sterkasta liðið í riðlinum.

„Við fórum ekkert allt of vel af stað. Við fórum með nýtt lið inn í þá leiki en höfum verið að bæta okkur síðan og taka skref fram á við. Brekka, en við ætlum að spóla upp þessa brekku. Mér finnst við hafa gert vel, HM í heild sinni var mjög gott, við tókum skref fram á við þar í öllum þáttum leiksins. Það er langt um liðið síðan við spiluðum leik í þessari keppni, mikið gengið á og mikið verið gert sem ég er ánægður með. Núna þurfum við bara að halda áfram.“

Ísland og Svartfjallaland hafa ekki mæst í þessari undankeppni en liðin mættust mjög nýlega á HM í Þýskalandi, í leik sem endaði með sjö marka sigri Svartfjallalands.

„Við tókum góðan fund í gær og skoðuðum þann leik aðeins. Mér finnst við eiga mikið inni. Við hefðum getað verið mun grófari og fastari fyrir varnarlega. Það er eitthvað sem við þurfum að gera á móti svona liði. Þær eru stórar og sterkar þannig að það er virkilega mikilvægt að við spilum á okkar styrkleikum og keyrum á þær“ sagði landsliðskonan Elín Klara Þorkelsdóttir. 

Frá því á HM hefur leikmannahópurinn tekið nokkrum breytingum. Meiðsli (Alfa Brá Hagalín Oddsdóttir), lokapróf (Díana Dögg Magnúsdóttir, verður með í seinni leiknum) og barneignaleyfi (Þórey Anna Ásgeirsdóttir) munu halda mikilvægum leikmönnum frá keppni.

Thea Imani Sturludóttir æfði síðan ekki með liðinu í gær og verður að öllum líkindum ekki með í leikjunum tveimur.

Það eru þó ekki bara forföll í hópnum heldur hefur Andrea Jacobsen jafnað sig af meiðslum og stefnir á að koma af krafti inn í þetta verkefni.

„Ég er aftur kominn í spilform, verkjalaus og klár í þetta, hlakka mikið til að leggja mitt af mörkum. Ég fékk góðan tíma eftir stórmótið til að ná mér og hef spilað marga leiki með Blomberg í Þýskalandi. Ég myndi segja að þetta væri bara komið, búið og gleymt“ sagði Andrea um ökklameiðslin sem hrjáðu hana á HM.

Fjallað var um leik Íslands og Svartfjallalands í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. 

Leikurinn hefst klukkan 18:00 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×