Smáframleiðendur – vannýtt tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf? Sveinbjörg Rut Pétursdóttir skrifar 4. mars 2026 12:30 Á undanförnum árum hefur smáframleiðendum matvæla fjölgað jafnt og þétt á Íslandi. Víða um land eru einstaklingar og fjölskyldufyrirtæki að þróa og framleiða vörur úr íslensku hráefni, kjöt, grænmeti, drykki og fjölbreyttar sérvörur sem endurspegla sérstöðu landsins og heimabyggðar. Þessi fyrirtæki skapa störf, fjölbreytni og verðmæti í heimabyggð. Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun standa smáframleiðendur oft frammi fyrir krefjandi starfsumhverfi. Regluverk, eftirlit og aðgengi að markaði er í mörgum tilvikum mótað með stærri framleiðendur í huga. Það getur gert litlum fyrirtækjum erfitt fyrir að vaxa, þróa nýjar vörur og koma þeim á markað. Þetta er ekki séríslenskt vandamál. Í mörgum löndum hefur á undanförnum árum verið unnið markvisst að því að skapa betra rekstrarumhverfi fyrir smáframleiðendur matvæla. Slíkar aðgerðir eru oft hluti af byggðastefnu og nýsköpunarstefnu ríkja, enda er ljóst að smáframleiðsla getur haft veruleg jákvæð áhrif á atvinnulíf, ferðaþjónustu og sjálfbæra nýtingu staðbundinna auðlinda. Á Íslandi er einnig vaxandi áhugi meðal neytenda á staðbundnum matvælum og vörum sem framleiddar eru í litlum mæli með skýra tengingu við uppruna sinn. Þar liggja því bæði tækifæri fyrir framleiðendur og samfélagið í heild. En til þess að þessi þróun nái að blómstra þarf umræðan um starfsumhverfi greinarinnar að vera opin og heildstæð. Hvernig tryggjum við að reglur tryggi bæði matvælaöryggi og sanngjörn skilyrði fyrir smærri framleiðendur? Hvernig getum við aukið samstarf milli framleiðenda, veitingageirans og verslunar? Og hvernig nýtum við betur þá verðmætasköpun sem felst í staðbundinni matvælaframleiðslu? Þessum spurningum verður meðal annars velt upp á málþingi um stöðu og framtíð smáframleiðenda matvæla sem Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir í samstarfi við Farskóla Norðurlands vestra. Málþingið fer fram í Miðgarði í Skagafirði laugardaginn 7. mars. Á málþinginu munu fulltrúar smáframleiðenda, veitingageirans, smásölu og eftirlitsaðila ræða bæði tækifæri og áskoranir greinarinnar. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir opna umræðu um framtíð greinarinnar og hvernig hægt sé að skapa umhverfi sem styður við nýsköpun, fjölbreytni og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu um allt land. Smáframleiðendur eru mikilvægur hluti af íslensku atvinnulífi, ekki síst á landsbyggðinni. Með réttu starfsumhverfi geta þeir orðið enn stærri drifkraftur í nýsköpun, ferðaþjónustu og matarmenningu landsins. Umræðan er því ekki aðeins fyrir framleiðendur sjálfa heldur alla sem hafa áhuga á framtíð íslenskrar matvælaframleiðslu. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matvælaframleiðsla Mest lesið Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Sjá meira
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar