Hvað borðar þú mörg naut og kjúklinga á dag? Sigurður Árni Þórðarson skrifar 4. mars 2026 14:30 Hvað heldur þú að mörgum dýrum sé slátrað á hverjum degi til að næra mannfólkið? Það er mikill fjöldi og kemur flestum á óvart, hvort sem við neytum kjöts eða ekki. Nærri milljón nautgripir falla á hverjum degi, liðlega fjórar milljónir svína og ellefu milljón endur. En þessar dýrategundir nægja ekki til að seðja hungur liðlega átta milljarða manna. Kjúklingar eru í sérflokki. Ótrúlegt nokk, 209.000.000 slíkra er slátrað á hverjum einasta degi ársins til að fæða mannkynið! Það er há tala, tvö hundruð og níu milljónir kjúklinga á dag! Óhóf í kjötnotkun er siðferðismál. Flest sláturdýr heimsins eru alin í iðnaðarbúum. Í þeim skipta hagkvæmni og afköst meira máli en lífsgæði dýranna. Í mörgum samfélögum hefur kjötneysla aukist langt umfram nauðsyn. Búfjárrækt krefst mikils lands undir fóðurframleiðslu og losar umtalsvert magn gróðurhúsalofttegunda. Óhófleg kjötframleiðsla leiðir til landníðs og skemmda á lífríki jarðarkúlunnar. Lausnin er ekki að hætta allri kjötnoktun, heldur að landbúnaður heimsins sé iðkaður af hófsemi og virðingu gagnvart dýrum, umhverfi og lífríki. Við ættum að styðja íslenskan landbúnað af krafti og elsku. Og notum fremur orku Íslands til ræktunar grænmetis og ávaxta en að framleiða rafmynt sem enginn getur borðað. Stillum kaupum okkar í hóf af mat sem framleiddur er hinum megin á hnettinum og hægt er að rækta eða ala á Íslandi. Almennt borðum við of mikið kjöt í okkar heimshluta. Förum yfir og endurskoðum innkaup og neyslu okkar. Fínstillum siðferðið og bætum þar með heilsuna. Jarðarkúlan okkar á ekki að vera svínastía heldur unaðsreitur í geimnum. Tvö hundruð og níu milljónir er of mikið og líka yfir fjórar milljónir svína á dag. Höfundur er örbóndi og áhugakokkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Matvælaframleiðsla Sigurður Árni Þórðarson Mest lesið Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lítil þjóð, stór tækifæri Þórður Birgisson skrifar Skoðun Hvalveiðar – þjóðarskömm sem verður að heyra sögunni til Helgi Felixson skrifar Skoðun Þjóðargersemi Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sæti við borðið – eða sæti á ganginum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Ég vil ráða mínu sumarfríi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Mannmiðjuvillan og dýradráp Íslendinga Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Stóra Stjórnarskrármálið Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hverjir fá sætin við borðið? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Já til að SJÁ Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fórnarlambsnaglinn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður blóraböggull Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Sumarsólstöður: Tími birtu, þakklætis og helgisiða Þuríður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Skýr mörk fyrir vindorku, sterkari vernd fyrir náttúruna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Hver hugsar þegar þú notar gervigreind — þú eða vélin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mannréttindastofnun og réttindagæsla fatlaðs fólks Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Af hverju ekki að segja Nei … af hverju ætti að segja kannski? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Árásargjarnir lobbíistar vindorkuiðnaðarins Anna Soffia Kristjánsdóttir skrifar Skoðun 19. júní í skugga bakslags: Jafnrétti er ekki sjálfgefið Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Helförin var bara fugladrit Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Síðustu móhíkanarnir Viðar Halldórsson skrifar Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun EES fyrir fyrirtækin, ESB fyrir fólkið? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvern vantar enn við borðið? Jana Birta Björnsdóttir,Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Áfram gakk Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hvað þarf að vera til staðar ef dánaraðstoð verður heimiluð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Sjá meira
Hvað heldur þú að mörgum dýrum sé slátrað á hverjum degi til að næra mannfólkið? Það er mikill fjöldi og kemur flestum á óvart, hvort sem við neytum kjöts eða ekki. Nærri milljón nautgripir falla á hverjum degi, liðlega fjórar milljónir svína og ellefu milljón endur. En þessar dýrategundir nægja ekki til að seðja hungur liðlega átta milljarða manna. Kjúklingar eru í sérflokki. Ótrúlegt nokk, 209.000.000 slíkra er slátrað á hverjum einasta degi ársins til að fæða mannkynið! Það er há tala, tvö hundruð og níu milljónir kjúklinga á dag! Óhóf í kjötnotkun er siðferðismál. Flest sláturdýr heimsins eru alin í iðnaðarbúum. Í þeim skipta hagkvæmni og afköst meira máli en lífsgæði dýranna. Í mörgum samfélögum hefur kjötneysla aukist langt umfram nauðsyn. Búfjárrækt krefst mikils lands undir fóðurframleiðslu og losar umtalsvert magn gróðurhúsalofttegunda. Óhófleg kjötframleiðsla leiðir til landníðs og skemmda á lífríki jarðarkúlunnar. Lausnin er ekki að hætta allri kjötnoktun, heldur að landbúnaður heimsins sé iðkaður af hófsemi og virðingu gagnvart dýrum, umhverfi og lífríki. Við ættum að styðja íslenskan landbúnað af krafti og elsku. Og notum fremur orku Íslands til ræktunar grænmetis og ávaxta en að framleiða rafmynt sem enginn getur borðað. Stillum kaupum okkar í hóf af mat sem framleiddur er hinum megin á hnettinum og hægt er að rækta eða ala á Íslandi. Almennt borðum við of mikið kjöt í okkar heimshluta. Förum yfir og endurskoðum innkaup og neyslu okkar. Fínstillum siðferðið og bætum þar með heilsuna. Jarðarkúlan okkar á ekki að vera svínastía heldur unaðsreitur í geimnum. Tvö hundruð og níu milljónir er of mikið og líka yfir fjórar milljónir svína á dag. Höfundur er örbóndi og áhugakokkur.
Skoðun „Hvernig veit ég hvort ég hafi gert eitthvað við konu án samþykkis?“ Guðný S. Bjarnadóttir skrifar