Brynjar ráðinn korter í kosningar Jakob Bjarnar skrifar 4. mars 2026 13:49 Brynjar virðist vera algjörlega ómissandi. Þannig hefur Sjálfstæðisflokkurinn gripið til þess að ráða hann nú starfsmann þingflokksins en korter er í að hann verði launaður borgarfulltrúi flokksins. vísir/vilhelm Brynjar Níelsson, sem skipar þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum hefur óvænt verið ráðinn starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ráðningin er gerð tíu vikum fyrir kosningar í borginni þar sem telja má fullvíst að Brynjar nái kjöri sem borgarfulltrúi.
Brynjar hefur verið skráður á vef Alþingis sem starfsmaður þingflokksins. Hann dró á dögunum til baka umsókn sína sem héraðsdómari og sagðist hafa viljað svara kalli Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningum. Á skrifstofu Alþingis, í hópi aðstoðarmanna, hittir Brynjar fyrir Helga Brynjarsson son sinn sem er á meðal sjö starfsmanna flokksins á þinginu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur fimm stöðugildi á skrifstofunni en dæmi eru um að starfsfólk hafi ekki verið í fullu hlutfalli. Þannig var Andri Steinn Hilmarsson bæjarfulltrúi í Kópavogi á móti í hálfu starfi fyrir þingflokkinn. Full laun starfsfólks þingflokka eru um 1130 þúsund krónur. Listi yfir að starfsmenn þingflokks og aðstoðarmenn formanna, en þar eru 28 á skrá, er forvitnileg lesning. Þar eru nokkrir fyrrverandi þingmenn auk Brynjars svo sem Unnur Brá Konráðsdóttir sem var í eina tíð forseti Alþingis og Ásta Guðrún Helgadóttir starfsmaður Samfylkingarinnar en hún sat á þingi fyrir Pírata. Einnig má nefna Gunnar Braga Sveinsson sem titlaður er aðstoðarmaður Miðflokksins en hann sat á þingi fyrir Framsóknarflokkinn. Þarna eru jafnframt gömul brýni úr blaðamannastétt á borð við Heimi Má Pétursson fyrrverandi fréttahaukur Stöðvar 2 fyrir Flokk fólksins og Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamann fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar má að auki finna félaga af gamla Kjarnanum, þá Þórð Snæ Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson fyrir Samfylkinguna. Ekki náðist í Brynjar við vinnslu fréttarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Alþingi Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla komu á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira