Körfubolti

Elvar en ekki Frið­riks­son

Sindri Sverrisson skrifar
Elvar Már Friðriksson er mættur aftur til Litáen eftir hetjudáðir sínar með íslenska landsliðinu.
Elvar Már Friðriksson er mættur aftur til Litáen eftir hetjudáðir sínar með íslenska landsliðinu. Getty/Jón Gautur

Elvar Már Friðriksson var heiðraður með skemmtilegum glaðningi þegar hann sneri aftur til félagsliðs síns í Póllandi, eftir vægast sagt hetjulega frammistöðu með íslenska landsliðinu.

Elvar hefur verið leikmaður Anwil Wloclawek í Póllandi frá því síðasta sumar og borið föðurnafn sitt aftan á treyjunni, eins og gjarnan tíðkast í íþróttum þó svo að það rími illa við íslenska nafnahefð.

Hann fékk hins vegar nýja treyju afhenta á æfingu í vikunni og mun nú bera skírnarnafnið sitt, Elvar, á treyjunni.

Eflaust hafa menn viljað heiðra Elvar sérstaklega eftir stórbrotna frammistöðu hans í sigrinum gegn Litáen síðastliðinn föstudag, þar sem Elvar leiddi Ísland í ótrúlegri endurkomu eftir að liðið hafði lent 21 stigi undir. Sú frammistaða vakti mikla athygli.

Í færslu á Instagram segir að fólkið hjá Anwil Wloclawek sé stolt af því að félagið sé það fyrsta sem merkir búning Elvars með nafni hans en ekki föðurnafninu.

Elvar hefur verið í atvinnumennsku meira og minna frá því að þessi 31 árs gamli Njarðvíkingur kvaddi bandaríska háskólakörfuboltann árið 2018, eftir að hafa spilað þar með LIU Brooklyn og Barry háskólanum. Hann hefur síðan spilað í Frakklandi, Svíþjóð, Litáen, Belgíu, Ítalíu, Grikklandi og nú Póllandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×