Handbolti

Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn fé­lögum sínum í Mag­deburg

Sindri Sverrisson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson í kröppum dansi gegn Barcelona í kvöld.
Gísli Þorgeir Kristjánsson í kröppum dansi gegn Barcelona í kvöld. Getty/Ronny Hartmann

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í Barcelona urðu í kvöld fyrsta liðið til að vinna Magdeburg í Meistaradeild Evrópu í handbolta á þessari leiktíð, í sannkölluðum stórleik í Þýskalandi. Fjöldi Íslendinga var á ferðinni í keppninni í kvöld.

Viktor Gísli fékk að spila nokkuð miðað við tölfræði EHF og varði tvö af ellefu skotum sem hann fékk á sig. Hann var því með betri niðurstöðu en Daninn Emil Nielsen sem varði fjögur af 24 skotum sem hann fékk á sig, samkvæmt EHF.

Viktor Gísli Hallgrímsson mætti félögum sínum úr landsliðinu í kvöld.EPA/JOHAN NILSSON

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm marka Magdeburgar og Ómar Ingi Magnússon þrjú. Elvar Örn Jónsson er að snúa aftur eftir meiðslin á EM í janúar og var á leikskýrslu en ekki á meðal markaskorara.

Sigurinn kom Börsungum upp fyrir Magdeburg á topp B-riðils nú þegar ein umferð er eftir af riðlakeppninni. Liðin eru bæði örugg um að fara beint áfram í 8-liða úrslitin.

Janus Daði markahæstur

Í B-riðlinum varð Janus Daði Smárason hins vegar að sætta sig við tap, þrátt fyrir að verða markahæstur með sjö mörk, þegar GOG sótti tvö stig gegn Pick Szeged með 37-34 sigri.

Í A-riðlinum tapaði Íslendingaliðið Kolstad í botnslag gegn Dinamo Búkarest, 33-23, á útivelli. Ljóst er að bæði lið falla úr keppni. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur marka Kolstad en Benedikt Óskarsson átti eitt skot og skoraði ekki úr því. Sigurjón Guðmundsson varði þrjú af fjórtán skotum sem hann fékk á sig.

Bjarki Már Elísson var ekki með Veszprém vegna meiðsla, þegar liðið tapaði 33-31 gegn Nantes í Frakklandi.

Veszprém og Nantes eru því jöfn að stigum í 4.-5. sæti fyrir lokaumferðina, stigi á eftir Kielce og tveimur fyrir ofan Sporting.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×