Hvenær verður ágreiningur að hatursorðræðu? Hilmar Kristinsson skrifar 6. mars 2026 09:02 Orð hafa alltaf haft þunga í íslensku samfélagi. Í Hávamálum er minnt á að allt deyi að lokum – fé, ættingjar og maðurinn sjálfur – en orðspor manns lifi áfram. Orð skipta máli. Þau móta hvernig við sjáum hvert annað og hvernig samfélagið þróast. Það er því ekkert nýtt að samfélag glími við spurninguna um orð og áhrif þeirra. Í dag ræðum við hatursorðræðu, lagaramma og jafnvel hugmyndir um gagnagrunna sem skrá slík mál. Markmiðið er skiljanlegt: að vernda fólk gegn niðurlægingu, fordómum og ofbeldi. Raunveruleg hatursorðræða og hatursglæpir eru alvarlegt vandamál sem samfélög þurfa að taka föstum tökum. Þegar samfélag reynir að skilgreina hatursorðræðu vaknar þó óhjákvæmilega erfið spurning: Hvar liggja mörkin milli hatursorðræðu og siðferðilegs ágreinings? Íslendingasögurnar minna okkur á að orð geta haft afleiðingar sem menn sjá ekki alltaf fyrir. Í Njálu sjáum við hvernig háðsyrði og ásakanir magnast þar til samfélagið fer að brotna. Samt þurfti samfélagið að finna leið til að takast á við slíkar deilur án þess að allt færi í bál og brand. Þess vegna varð Alþingi til forna vettvangur þar sem menn komu saman til að ræða mál og dæma þau samkvæmt lögum. Ágreiningur var ekki þaggaður niður… hann var færður inn í ramma samfélagsins. Frjáls samfélög standa frammi fyrir svipaðri áskorun í dag. Þau þurfa að geta barist gegn hatri og niðurlægingu, en um leið að halda rými fyrir ágreining. Ef allar erfiðar eða óþægilegar skoðanir eru skilgreindar sem hatur verður umræðan fljótt þröng og þver. Undanfarin ár hefur stundum verið talað um að móðgun sé „vopnvædd“ í umræðu… þegar það eitt að einhver upplifi orð sem særandi verður næg ástæða til að stöðva umræðu frekar en að svara henni. Slík þróun getur gert samfélaginu erfitt fyrir að ræða erfiðar siðferðilegar spurningar af yfirvegun. Raunveruleg hatursorðræða og niðurlæging á fólki á ekki að líðast. En frjáls samfélög þurfa líka að geta haldið rými fyrir ágreining. Frjálst samfélag þarf að geta barist gegn hatri… án þess að gera ágreining að glæp. Kristin hefð hefur einnig lengi glímt við spurninguna um orð og ábyrgð í tali. Í Nýja testamentinu eru kristnir menn hvattir til að tala þannig að orð þeirra byggi upp frekar en brjóti niður og að tala sannleikann í kærleika. Í guðspjöllunum er frásögn þar sem kona er færð fyrir Jesú og fólk vill dæma hana. Hann svarar einfaldlega: „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.“ En hann segir líka við konuna að fara og syndga ekki framar. Í þessari stuttu sögu sjáum við spennu sem hefur fylgt kristinni siðfræði allar götur síðan… hvernig má tala um rétt og rangt án þess að gera manneskjuna sjálfa að óvin. Spennan – milli sannleika og náðar – hefur fylgt kristinni siðfræði í tvö þúsund ár. Breski hugsuðurinn C.S. Lewis benti á að samfélög gætu stundum átt erfitt með að ræða siðferðileg viðmið og samtímis ætlast til skýrrar siðferðilegrar hegðunar. Þegar tilfinningar og lög verða einu verkfærin í umræðu getur siðferðileg dómgreind orðið veikburða. Samfélög þurfa meira en tilfinningar og lög, þau þurfa líka visku til að lifa með ágreiningi. Forn íslensk viska minnti á að orð hefðu þunga. Kristin hefð bætir við að sannleikurinn eigi að vera sagður með náð. Samfélag sem vill útrýma hatri þarf að gæta þess að útrýma ekki líka rýminu fyrir óþægilegar skoðanir. Frjáls samfélög lifa ekki á samhljómi. Samhljómur og friður eru ekki það sama. Samfélag getur verið mjög rólegt á yfirborðinu ef enginn þorir að segja neitt sem veldur ágreiningi. En slíkur samhljómur er ekki endilega friður. Samfélög lifa á því að fólk má vera ósammála… án þess að gera hvert annað að óvinum. „Sælir eru friðflytjendur.“ (Matt 5:9) Höfundur er guðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Tjáningarfrelsi Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar