Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Andri Már Eggertsson skrifar 6. mars 2026 20:58 Hilmar Pétursson var öflugur í sigri Keflavíkur Vísir/Vilhelm Eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum eru Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut. Leikurinn endaði með tíu stiga sigri Keflavíkur í Kaldalóns-höllinni 96-106. Keflvíkingar byrjuðu leikinn betur og tóku frumkvæðið. Sigurður Pétursson, fyrrum leikmaður Keflavíkur, átti síðan lagleg tilþrif um miðjan fyrsta leikhluta þar sem hann varði skot Egor Koulechov í spjaldið. Þetta kveikti í heimamönnum sem gerðu átta stig í röð og komust yfir. Landsliðsmaðurinn, Ragnar Nathanaelsson, lokaði fyrsta leikhluta á að setja niður tvö vítaskot og heimamenn voru þremur stigum yfir eftir fyrsta fjórðung 20-17. Keflvíkingar duttu í gang í öðrum leikhluta og sóknarleikurinn fór að ganga töluvert betur. Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Álftnesinga, sagði í viðtali fyrir leik að hann ætlaði að koma Keflvíkingum á óvart varnarlega en það var ekki að sjá þar sem gestirnir gerðu 28 stig á 10 mínútum. Gestirnir voru níu stigum yfir í hálfleik 36-45. Álftnesingar voru ekki á því að leggjast niður eftir vondan fyrri hálfleik og mættu af krafti inn í þann síðari. Orkustigið var hærra, skotin fóru að detta ofan í hjá Sigurði Péturssyni sem fann sig ekki í fyrri hálfleik og fólkið tók við sér í stúkunni. Forskot Keflvíkinga fór minnst niður í sex stig en gestirnir úr Keflavík settu stór skot ofan í og drógu tennurnar hægt og rólega úr Álftnesingum. Fjórði leikhluti þróaðist líkt og sá þriðji. Heimamenn komu muninum minnst niður í sex stig en þá settu Keflvíkingar niður þrista og á endaum var allur vindur úr Álftnesingum og gestirnir gengu á lagið. Niðurstaðan tíu stiga sigur Keflavíkur 96-106. Atvik leiksins Undir lok þriðja leikhluta setti Ólafur Björn Gunnlaugsson niður þrist, Álftnesingar tóku leikhlé í kjölfarið og Sigurður Pétursson leikmaður liðsins dúndraði bolta í auglýsingaskilti og fékk tæknivillu. Á þessu augnabliki var sigur Keflavíkur í höfn. Stjörnur og skúrkar Egor Koulechov, leikmaður Keflavíkur, var öflugur í kvöld. Egor var stigahæstur með 25 stig en hann tók einnig 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Hilmar Pétursson, leikmaður Keflavíkur, gerði 18 stig og tók 9 fráköst. Á þeim 32 mínútum sem hann spilaði vann Keflavík með 18 stigum. Rati Andronikashvili, leikmaður Álftaness, fann sig ekki í kvöld og var í engum takti við leikinn. Þriggja stiga nýting Sigurðar Péturssonar var ekki góð en hann tók átta þriggja stiga skot og hitti aðeins úr einu. Dómararnir Dómarar kvöldsins voru Jóhannes Páll Friðriksson, Gunnlaugur Briem og Bjarni Rúnar Lárusson. Dómararnir geta verið sáttir við sitt framlag í kvöld og þeirra störf höfðu engin neikvæð áhrif á leikinn. Stemning og umgjörð Mætingin hefur oft verið betri í Kaldalóns-höllinni og rímaði við gengi liðsins. Guðni Th. Jóhannesson, fyrrum forseti Íslands, er þó ekki búinn að snúa baki við liðinu og var mættur að horfa á leikinn. „Þetta var ákveðið hark“ Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður með sigurinnVísir/Vilhelm Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ánægður með að vera kominn aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð. „Þetta var ákveðið hark. Ég var mjög ánægður með varnarleikinn í fyrri hálfleik en þeir fóru að sækja hraðar á okkur í seinni hálfleik. Þegar þeir komust í takt þá vorum við lengi að bregðast við því en ég var ánægður með liðsheildina í kvöld,“ sagði Daníel í viðtali eftir leik. Vörn Keflavíkur var öflug í fyrri hálfleik sem gerði það að verkum að heimamenn skoruðu aðeins 36 stig. „Við vorum með ákveðnar aðlaganir varnarlega og það var mikil áhersla á Justin James. Ég talaði um það fyrir leik að Dúi Þór yrði góður í þessum leik og hann var það. Bæði lið voru að hitta illa fyrir utan þriggja stiga línuna og við vorum að veðja á ákveðna leikmenn hjá þeim sem gekk upp í fyrri hálfleik en ekki eins vel í seinni hálfleik.“ Aðspurður út í heilsu Remy Martin og hvort hann væri væntanlegur í næsta leik sagði Daníel að það væri líklegt. „Ég bind miklar vonir við það og hann er duglegur að sinna endurhæfingu sinni. Það er gott fólk að hugsa um hann. Við þurfum að koma honum í takt og gera hann tilbúinn,“ sagði Daníel Guðni að lokum. Bónus-deild karla Keflavík ÍF UMF Álftanes Körfubolti
Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Körfubolti
Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Körfubolti