ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. mars 2026 21:00 Frá leik ÍR fyrr á tímabilinu vísir/Hulda Margrét ÍR vann dramatískan þriggja stiga sigur er liðið tók á móti ÍA í 19. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld, 86-83. Sigurinn þýðir að ÍR-ingar eru formlega sloppnir við fall, en Skagamenn eru enn á botni deildarinnar. ÍR-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust snemma í tíu stiga forskot. Heimamenn spiluðu virkilega sterka vörn og áttu Skagamenn í stökustu vandræðum með að finna leiðir að körfunni á fyrstu mínútum leiksins. ÍA fór þó að finna leiðir að körfunni og minnkaði muninn fljótt niður í tvö stig. Munurinn á liðunum varð aldrei meiri en fimm stig það sem eftir lifði 1. leikhluta og heimamenn í ÍR leiddu að honum loknum 25-23. Eftir ágætis byrjun á 2. leikhluta fór að fjara undan hjá heimamönnum í ÍR og allt í einu virtust Skagamenn vera komnir með völdin á vellinum. ÍA náði mest tíu stiga forskoti undir lok hálfleiksins áður en Hákon Örn Hjálmarsson setti niður tvö víti fyrir ÍR og Kristján Fannar Ingólfsson negldi niður flautuþrist til að minnka muninn niður í fimm stig fyrir hlé. Staðan í hálfleik var því 45-50, ÍA í vil, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Skagamenn héldu forystunni í upphafi 3. leikhluta og náðu tíu stiga forskoti í stöðunni 49-59. Darryl Morsell leiddi línuna fyrir gestina og reyndist ÍR-ingum oft og tíðum erfiður. Gestirnir héldu í kringum tíu stiga forskoti út leikhlutann og leiddu 60-71 þegar komið var að lokaleikhlutanum. Lokaleikhlutinn fór nokkuð hægt af stað og Skagamenn voru því enn með yfirhöndina. Heimamenn fundu þó taktinn á hárréttum tíma og með Jacob Falko í fararbroddi náði liðið forystu þegar rétt rúmar tvær mínútur voru til leiksloka. Raunar fór Falko hamförum fyrir heimamenn á lokamínútunum og skoraði níu stig í röð fyrir liðið undir lokin. ÍR-ingar náðu svo þriggja stiga forskoti þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum og Skagamenn þurftu þrist til að komast í framlengingu. Síðasta sókn Skagamanna gekk hins vegar ekki og niðurstaðan varð þriggja stiga sigur ÍR, 86-83. Atvik leiksins Jacob Falko undir lok leiks var gjörsamlega frábær. Hann prjónaði sig hvað eftir annað í gegnum vörn Skagamanna og setti niður þrista þess á milli til að svo gott sem vinna þennan leik upp á sitt einsdæmi. Stjörnur og skúrkar Kemur svo sem líklega lítið á óvart að Jacob Falko er stjarna kvöldsins. Hann skoraði 28 stig fyrir heimamenn, tók sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar. Hvorki fleiri né færri en 37 framlagspunktar. Í liði ÍA bar Darryl Morsell höfuð og herðar yfir aðra leikmenn. Maðurinn skilaði 35 stigum, níu fráköstum og sjö stoðsendingum, en gengur tómhentur frá þessum leik. Stemning og umgjörð Það var nokkuð vel mætt í Skógarselið í kvöld og áhorfendur létu vel í sér heyra. Þá varumgjörð ÍR-inga til fyrirmyndar, og fá konurnar í sjoppunni sérstakt hrós fyrir blíðar og góðar móttökur. Bónus-deild karla ÍR ÍA Körfubolti
Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Körfubolti
Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Körfubolti