Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Rakel Sveinsdóttir skrifar 7. mars 2026 10:02 Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, heyrir oft í vinkonu sinni í bílnum á leiðinni í vinnuna á morgnana. Áður nýtti hún ferðina í að mála sig á rauðu ljósi. Eitthvað sem hún segist vera orðin duglegri að gera núna heima áður en hún leggur af stað. Vísir/Einar Árnason Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Svona rétt um sjö en það fer eftir dagskrá dagsins. Núna eru strákarnir mínir orðnir unglingar og sjá um sig sjálfir að mestu leyti. En við eiginmaðurinn lítum svona til með þeim og komum hlutunum af stað ef þess þarf.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? Ég er tiltölulega nýbyrjuð að vera duglegri við að taka mig til heima. Ég átti það áður til að nota bílferðina í vinnuna til þess að mála mig á rauðu ljósi en nú er þetta orðið aðeins vandaðra hjá mér. Svo er það fyrsti kaffibolli dagsins sem er alltaf sá besti en ég borða ekki mikið í morgunmat. Í bílnum á leiðinni í vinnuna heyri ég oft í vinkonu minni og við komum okkur í gírinn saman með góðu spjalli.“ Á skalanum 0-10, hversu handlaginn ertu heima fyrir? „Það reynir nú ekki mikið á það þessa dagana. En þegar ég tek mig til þá finnst mér gaman að bora og setja upp hillur og annað eins. Síðan get ég lagað hluti sem bila og er alveg ágæt í að skipta um kló ef þarf. Þannig að ég ætla að gefa sjálfri mér svona 7-8! Ég legg metnað í að eiga verkfæri og var sú á heimilinu sem bjó til minn eigin verkfærakassa á plötusmíða- og logsuðunámskeiði. Síðan á ég þennan forláta bor og hengi gjarnan upp hillur og svoleiðis. Við hjónin erum síðan dugleg að styðja iðnaðarmenn þegar verkefnin verða flóknari og tímafrekari.“ Sylvía forgangsraðar verkefnum eftir mikilvægi en segir veikleikann sinn þann að hún er of bjartsýn og endar því með að vinna lengur en hún ætlaði. Þessa dagana er hún að athuga hvernig gervigreindin getur hjálpað henni í enn betra skipulagi. Vísir/Einar Árnason Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég er nánast glæný hjá Nova, eða byrjaði þar í október í fyrra. Það hefur verið margt að setja sig inn í og ég er ljónheppin hvað fólkið á Nova er klárt og skemmtilegt. Það er ótrúlega leitandi og öflugt í því að bæta vöruframboðið og finna nýjar leiðir til að veita viðskiptavinum okkar betri þjónustu. Rétt í þessu vorum við síðan að halda upp á Nova-daginn þar sem starfsfólkið kom saman og lagði drög að því sem við gerum á árinu. Síðan erum við að vinna að sameiningu við Ofar en það er að fara í ferli hjá Samkeppniseftirlitinu. Sjálf var ég síðan að koma af einni stærstu fjarskiptasýningu heims í Barcelona og er nú orðin alveg hrikalega spennt yfir því sem er væntanlegt í fjarskipta- og tæknigeiranum næstu misserin.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég byrja yfirleitt daginn á að fara yfir verkefnin sem liggja fyrir og forgangsraða þeim eftir mikilvægi. Ég skipulegg síðan fram í tímann þau atriði sem ég vil leggja mesta áherslu á og set á reglulega fundi og skoða aðgerðir tengdar þeim fram í tímann. Minn veikleiki er þó að ég er oftast aðeins of bjartsýn á hvað ég kem miklu fyrir og enda því oft á að vinna aðeins lengur en ég ætlaði mér. Þessa dagana er ég að athuga hvort gervigreindin geti ekki aðeins hjálpað mér í skipulaginu að þessu leyti. Annars held ég að engin vika hjá mér hafi endað eins og ég skipulagði enda kemur oft ýmislegt óvænt og skemmtilegt upp á sem þarf að bregðast við.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Það er nú oftast upp úr miðnætti. Mér finnst mjög þægilegt að hlusta á góð lög á Spotify og hafa textastillinguna á og pæla soldið í textanum meðan ég hlusta. Ég er nú samt að minnka skjátíma beint fyrir svefn til að auka svefngæðin. Síðan er ekkert betra en að fara í gufu og leggjast upp í rúm í brakandi hrein rúmföt.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02 Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins. 21. febrúar 2026 10:00 Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00 Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar. 7. febrúar 2026 10:00 „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin. 31. janúar 2026 09:16 Mest lesið Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Atvinnulíf Pipar/TBWA með flesta Lúðra Viðskipti innlent Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Samstarf Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Skipti ekki máli hvaðan olían er Viðskipti innlent Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Fleiri fréttir Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Í röngu starfi og vansæl Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Samfélagsmiðlar á vinnutíma: Hversu oft og hvers vegna Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Glæpamenn í fjarvinnu Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Þessir þrír drepa alla góða fundi „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Sjá meira
„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02
Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins. 21. febrúar 2026 10:00
Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00
Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Lára Hrafnsdóttir, markaðsstjóri Sjóvá, segir miklu skipta að fara vel til höfð inn í daginn, þannig líði henni eins og hún sé geðveikt hress þótt svefnstundirnar hafi ekki verið margar. 7. febrúar 2026 10:00
„Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Snorri Björn Sturluson, fasteignasali, lögfræðingur og annar eigandi Valhallar fasteignasölu, tekur slurk í heimilisstörfunum fyrir vinnu á morgnana, þegar hann er of latur til að fara í ræktina. En segist þó almennt vonlaus í heimilisstörfunum og fær því stundum aðstoð við þrifin. 31. janúar 2026 09:16