Þjóðin kölluð að borðinu Jón Steindór Valdimarsson skrifar 7. mars 2026 09:01 Hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu er stórmál og aðild kemur ekki til greina án beinnar þátttöku þjóðarinnar. Stefna ríkisstjórnarinnar í málinu er skýr og um hana er einhugur meðal stjórnarflokkanna. Þjóðin á að ráða för. Þann 29. ágúst verðum við spurð einfaldrar spurningar: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Hver einstaklingur svarar spurningunni á sínum eigin forsendum en niðurstaðan ræðst einfaldlega af því hvort fleiri segja já eða nei. Annað hvort verður aðildarviðræðum haldið áfram eða ekki. Sumir segja að það megi ekki kljúfa þjóðina með slíkri atkvæðagreiðslu. Þá gefa menn sér að mjótt kunni að verða á mununum þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Það má vel vera að það verði niðurstaðan en það er ekki atkvæðagreiðslan sem klýfur þjóðina - hún er þá klofin fyrir. Lýðræðið er gott verkfæri þegar komast þarf að niðurstöðu í stórum sem smáum málum. Sem betur fer búum við í þjóðfélagi sem byggir á lýðræði. Umræða um Ísland og Evrópusambandið hefur verið ofarlega í þjóðfélagsumræðunni um áratuga skeið. Nú er búið að marka leið sem fellur að lögmálum lýðræðisins og virðingu fyrir þjóðarviljanum beint og milliliðalaust. Verkefni okkar allra fram til 29. ágúst er að velta fyrir okkur, hvert um sig, hvort sé skynsamlegra að segja já eða nei við einfaldri en afdrifaríkri spurningu. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Steindór Valdimarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu er stórmál og aðild kemur ekki til greina án beinnar þátttöku þjóðarinnar. Stefna ríkisstjórnarinnar í málinu er skýr og um hana er einhugur meðal stjórnarflokkanna. Þjóðin á að ráða för. Þann 29. ágúst verðum við spurð einfaldrar spurningar: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Hver einstaklingur svarar spurningunni á sínum eigin forsendum en niðurstaðan ræðst einfaldlega af því hvort fleiri segja já eða nei. Annað hvort verður aðildarviðræðum haldið áfram eða ekki. Sumir segja að það megi ekki kljúfa þjóðina með slíkri atkvæðagreiðslu. Þá gefa menn sér að mjótt kunni að verða á mununum þegar talið verður upp úr kjörkössunum. Það má vel vera að það verði niðurstaðan en það er ekki atkvæðagreiðslan sem klýfur þjóðina - hún er þá klofin fyrir. Lýðræðið er gott verkfæri þegar komast þarf að niðurstöðu í stórum sem smáum málum. Sem betur fer búum við í þjóðfélagi sem byggir á lýðræði. Umræða um Ísland og Evrópusambandið hefur verið ofarlega í þjóðfélagsumræðunni um áratuga skeið. Nú er búið að marka leið sem fellur að lögmálum lýðræðisins og virðingu fyrir þjóðarviljanum beint og milliliðalaust. Verkefni okkar allra fram til 29. ágúst er að velta fyrir okkur, hvert um sig, hvort sé skynsamlegra að segja já eða nei við einfaldri en afdrifaríkri spurningu. Höfundur er lögfræðingur.
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun