Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þórarinn Þórarinsson skrifar 7. mars 2026 07:01 Jóhanna Harðardóttir goði fordæmir orð kaþólska prestsins. Goðar Ásatrúarfélagsins fordæma ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, um samkynhneigða. Kjalnesingagoðinn Jóhanna Harðardóttir segir um sjálfsagt viðbragð að ræða enda séu engir guðir hafnir yfir landslög, fyrir utan að mikið er um samkynhneigt fólk í hópi íslenskra heiðingja.
Goðarnir sameinuðust í yfirlýsingu um að fordæma ummæli sem Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar, „viðhafði um samkynhneigð og hinsegin fólk og hafa verið til umræðu í fjölmiðlum.“Goðarnir lýsa „furðu sinni á því að einstaklingur í forsvari fyrir trú- og lífsskoðunarfélag virðist telja sig hafinn yfir m.a. almenn hegningarlög. Með lögum skal land byggja.“ „Okkur fannst sjálfsagt að gera þetta,“ segir Jóhanna Harðardóttir, kjalnesingagoði. „Það er jú fullt af samkynhneigðu fólki í okkar röðum og þar fyrir utan erum við bara að hugsa um landslög sem eru náttúrlega ofar öllum lögum guða,“ segir Jóhanna og bætir við að þá breyti engu hvort fulltrúar þeirra heiti Jesús, Múhameð eða Þór.Goðarnir láta einnig þau boð út ganga að fjölbreytileiki mannhafsins „gerir samfélag okkar betra og það er laga- og siðferðisleg skylda þeirra sem þjónusta landsmenn að taka þeim eins og þeir eru og standa vörð um réttindi þeirra.“ Jóhanna segir algeran einhug hafa verið um yfirlýsinguna og henni almennt fagnað meðal trúfélaga hennar. „Af því sem ég heyri þá er fólk bara mjög ánægt með að við skyldum tjá okkur um þetta.Við vorum nú líka þau fyrstu á Íslandi sem gáfu saman samkynhneigð pör.“Jóhanna rifjar í þessu sambandi upp hjónavígslu sem átti heldur betur eftir að draga sögulegan dilk á eftir sér. „Ég gaf meira að segja, á sínum tíma, saman tvo karlmenn frá Ástralíu. Þeir voru báðir lögfræðingar og notuðu það mál sér til framdráttar í Ástralíu sem varð síðan til þess að lögunum þar var breytt. Þannig að við eigum dálítinn þátt í þessu en annars álítum við bara að lög lands og almenns siðferðis liggi hærra heldur en nokkur trúarbrögð geta nokkurn tímann gert. Það er nú bara þannig.“
Trúmál Jafnréttismál Hinsegin Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira