„Engar varanlegar undanþágur í boði lengur“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 7. mars 2026 07:46 Fróðlegt viðtal var í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær þar sem rætt var við Heather Grabbe, sérfræðingi hjá Brugel-hugveitunni í Brussel, sem sagði meðal annars aðspurð hvað umsóknarríki gætu samið um við Evrópusambandið að hægt væri að semja um aðlögunartíma, sem einnig hafa verið kallur tímabundnar undanþágur eða tímabundin aðlögun, en varanlegar undanþágur (opt-outs) væru hins vegar ekki lengur á boðstólum. „95% af regluverki Evrópusambandsins er ekki umsemjanlegt vegna þess að það hefur þegar verið samþykkt af 27 ríkjum, önnur ríki hafa gengið í sambandið og orðið að samþykkja það allt. En ríki sem vill inngöngu getur alltaf samið um tímalínuna fyrir innleiðingu regluverks Evrópusambandsins. […] Þannig að það er svigrúm til þess að semja um aðlögunartíma en það eru engar varanlegar undanþágur í boði lengur,“ sagði Grabbe þannig. Málflutningur Grabbes er í fullu samræmi við það sem fram kemur í gögnum Evrópusambandsins um umsóknarferlið og ítrekaðar yfirlýsingar forystumanna þess um að varanlegar undanþágur séu ekki í boði og að ferlið snúist öðru fremur um aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins. Hins vegar er þetta í engu samræmi við það sem forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sagt. Að aðeins sé um að ræða viðræður. „Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið og gera það að hluta af landslögum sínum. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Með þessum hætti er umsóknarferli ríkja að Evrópusambandinu lýst á vef þess þar sem svarað er algengum spurningum varðandi ferlið. En þessu hafna Evrópusambandssinnar og eru með því einfaldlega að segja að sambandið fari með rangt mál. Þetta er þó enn fremur í samræmi við reynslu annarra ríkja í þeim efnum. En ef Evrópusambandið er að ljúga eins og þeir vilja greinilega meina, eru það þá rök fyrir inngöngu í það ofan á annað? Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Fróðlegt viðtal var í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær þar sem rætt var við Heather Grabbe, sérfræðingi hjá Brugel-hugveitunni í Brussel, sem sagði meðal annars aðspurð hvað umsóknarríki gætu samið um við Evrópusambandið að hægt væri að semja um aðlögunartíma, sem einnig hafa verið kallur tímabundnar undanþágur eða tímabundin aðlögun, en varanlegar undanþágur (opt-outs) væru hins vegar ekki lengur á boðstólum. „95% af regluverki Evrópusambandsins er ekki umsemjanlegt vegna þess að það hefur þegar verið samþykkt af 27 ríkjum, önnur ríki hafa gengið í sambandið og orðið að samþykkja það allt. En ríki sem vill inngöngu getur alltaf samið um tímalínuna fyrir innleiðingu regluverks Evrópusambandsins. […] Þannig að það er svigrúm til þess að semja um aðlögunartíma en það eru engar varanlegar undanþágur í boði lengur,“ sagði Grabbe þannig. Málflutningur Grabbes er í fullu samræmi við það sem fram kemur í gögnum Evrópusambandsins um umsóknarferlið og ítrekaðar yfirlýsingar forystumanna þess um að varanlegar undanþágur séu ekki í boði og að ferlið snúist öðru fremur um aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins. Hins vegar er þetta í engu samræmi við það sem forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa sagt. Að aðeins sé um að ræða viðræður. „Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið og gera það að hluta af landslögum sínum. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Með þessum hætti er umsóknarferli ríkja að Evrópusambandinu lýst á vef þess þar sem svarað er algengum spurningum varðandi ferlið. En þessu hafna Evrópusambandssinnar og eru með því einfaldlega að segja að sambandið fari með rangt mál. Þetta er þó enn fremur í samræmi við reynslu annarra ríkja í þeim efnum. En ef Evrópusambandið er að ljúga eins og þeir vilja greinilega meina, eru það þá rök fyrir inngöngu í það ofan á annað? Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál).
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar