Körfubolti

Hand­tekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arike Ogunbowale fagnar hér sigri í Unrivaled-deildinni en kvöldið endaði ekki vel.
Arike Ogunbowale fagnar hér sigri í Unrivaled-deildinni en kvöldið endaði ekki vel. Getty/Leonardo Fernandez

Körfuboltakonan Arike Ogunbowale, sem spilar með Dallas Wings í WNBA-deildinni, var handtekin í Miami snemma á fimmtudagsmorgun eftir úrslitaleik Unrivaled-deildarinnar.

Unrivaled-deildin er körfuboltadeild kvenna þar sem spilað er í þriggja manna liðum. Deildin var stofnuð árið 2023 til að gera WNBA-leikmönnum kleift að spila innanlands í stað þess að spila erlendis utan WNBA-tímabilsins.

Ogunbowale er sökuð um að hafa slegið mann hnefahögg í andlitið á næturklúbbi en hún var ákærð fyrir minni háttar líkamsárás. Maðurinn féll í gólfið eftir höggið frá körfuboltakonunni.

„Deildin hefur vitneskju um atvik sem Arike Ogunbowale átti aðild að og við erum að afla frekari upplýsinga,“ sagði talsmaður Unrivaled-deildarinnar í yfirlýsingu til ESPN. „Við erum í sambandi við Arike og fulltrúa hennar.“

Handtakan átti sér stað klukkan 4:20 að morgni fyrir utan næturklúbbinn E11EVEN í Miami. Samkvæmt lögregluskýrslu sló Ogunbowale mann með krepptum hnefa svo hann féll í jörðina. Upptökur frá næturklúbbnum náðu myndum af atvikinu, að því er segir í skýrslunni, og staðfestu frásögn mannsins.

Ogunbowale var úti á lífinu að fagna sigri í Unrivaled-deildinni með liðinu Mist. Ogunbowale skoraði nítján stig í úrslitaleiknum. Hún hefur fjórum sinnum verið valin í stjörnulið WNBA og tvisvar verið valin verðmætasti leikmaður stjörnuleiks WNBA.

„Dallas Wings hefur vitneskju um atvik sem Arike Ogunbowale átti aðild að og er að afla frekari upplýsinga,“ sagði liðið í yfirlýsingu til ESPN. „Frekari athugasemdir verða gefnar þegar við höfum frekari upplýsingar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×