Flestir fjölmiðlar eru ríkisfjölmiðlar á Íslandi Þorsteinn Sæmundsson skrifar 8. mars 2026 11:00 Eins og alkunna er hafa s.k. frjálsir eða einkareknir fjölmiðlar á Íslandi notið ríkisstyrkja undanfarin ár. Engin sérstök skilyrði fylgja styrkveitingum. Hvorki hvað varðar efnistök eða málfar. Flestir fjölmiðlar sér í lagi netmiðlar virðast vera í sérstakri herferð gegn móðurmálinu. Þar eiga allir miðlar nokkra sök m.a.s. ríkisismiðillinn. Allmargir hafa orðið til þess að gagnrýna styrkveitingarnar og benda á að ekki er hollt lýðræðinu að fjölmiðlar sem eiga að vera óháðir og frjálsir séu háðir ríkisstyrkjum. Alkunna er að ekki er bitið í höndina sem fóðrar. Þegar úthlutun styrkja fyrir árið 2025 var frestað ráku fulltrúar nokkurra fjölmiðla upp ramakvein. Þar má nefna forráðamenn Heimildarinnar sem höfðu næstu ár á undan skammtað sér laun sem voru heldur hærri en laun alþingismanna. Heimildin er þó einna neðst á lista yfir mest lesnu vefmiðla skv. upplýsingum Gallup. Ráðherra bætti úr undir árslok með nýrri úthlutun þar sem styrkur stærstu einkareknu miðlanna Morgunblaðsins og Sýnar var skorinn niður en verulega var bætt í styrk til Heimildarinnar sem var til skamms tíma vinnustaður ,,þýska stálsins” sem nú gegnir starfi framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar. Heimildin fékk semsagt þriðja hæsta stuðninginn, alls um 78 milljónir króna, þrátt fyrir mjög dræman lestur á miðlinum. Hugsanlega er styrkurinn ætlaður til að efla dreifingu miðilsins. Einnig fékk Fjölmiðlatorgið, útgefandi DV rífan styrk eða tæpar 39 milljónir króna. DV fer fyrir þeim miðlum sem hvað ákafast flaðra upp um núverandi ríkisstjórn og má segja að miðillinn hafi fengið umbun erfiðis síns með styrkveitingunni. Taka skal fram að ráðherra kvaðst hafa breytt úthlutun að mestum parti til að styðja við landsbyggðarmiðla. Það þarf umtalsverða kímnigáfu til að flokka Heimildina og DV í þann hóp. Allt um það sýnir þessi síðasta úthlutun hversu óheppilegt er fjölmiðlar séu háðir ríkisstyrkjum. Slíkt er síst til þess fallið að efla lýðræðislega umfjöllun og umræðu. Svo virðist sem stjórnvöld hafi gripið til þessa óyndisúrræðis til að forðast að taka á stærsta vandamálinu í fjölmiðlaumhverfi á Íslandi nefnilega stöðu RUV ohf. RUV ohf. hefur yfirburðastöðu á fjölmiðlamarkaði í krafti nauðungaráskriftar sem færir fyrirtækinu (RUV ohf. er ekki stofnun) um sjö milljarða króna á ári hverju. Þess má geta að unnt er að segja sig úr Þjóðkirkjunni en enginn getur sagt sig frá nauðungaráskriftinni að RUV ohf. Ekki einu sinni með því að hætta að greiða áskriftina. Greiðslufall kallar einfaldlega á innheimtuaðgerðir. Auk þessa leikur RUV ohf. lausum hala á auglýsingamarkaði og hugmyndir um að nýta hluta auglýsingatekna RUV ohf. sem eins konar jöfnunarsjóð eru engin lausn. Þar með yrðu einkareknir fjölmiðlar háðir því að RUV ohf. gangi vel á auglýsingamarkaði. Eðlilegt ástand á íslenskum fjölmiðlamarkaði mun ekki nást fyrr en neytendur sjálfir fá frelsi til að ráða hvaða fjölmiðil hver og einn vill styrkja með áskrift eins og við Miðflokksmenn höfum lagt til ítrekað á Alþingi. Höfundur er varaþingmaður Miðflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Þorsteinn Sæmundsson Fjölmiðlar Mest lesið Halldór 19.09.2026 Halldór Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír. Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Macklemore, Robert Kraft og sniðganga fyrir Palestínu Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar Skoðun „Við ætlum að læra af þessu“ – enn einu sinni! Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun