Sport

Sjónar­mun á undan í mara­þoni eftir lygi­legan enda­sprett

Sindri Sverrisson skrifar
Eins og sjá má var talsverður munur á fremstu tveimur mönnum í lokin en Nathan Martin tókst að vinna upp þann mun og koma sekúndubrotum á undan í mark.
Eins og sjá má var talsverður munur á fremstu tveimur mönnum í lokin en Nathan Martin tókst að vinna upp þann mun og koma sekúndubrotum á undan í mark.

Bandaríski forfallakennarinn Nathan Martin vann hreint ótrúlegan sigur í Los Angeles maraþoninu í gær. Myndband af sigrinum hefur vakið mikla athygli.

Martin var langt á eftir Keníabúanum Michael Kamau en náði með mögnuðum lokaspretti að skjóta sér fram fyrir og enda sjónarmun á undan honum.

Á myndbandinu hér að neðan má sjá lokasprettinn en Martin þurfti að éta upp mikið forskot í lokin. Lýsendur trúðu vart sínum eigin augum þegar það tókst þó á endanum en hlaupararnir enduðu í raun báðir með sama tíma, eða 2 klukkustundir, 11 mínútur og 18 sekúndur.

Það var hins vegar Martin sem kom fyrstur í mark og sleit borðann á endalínunni.

Martin sagðist eftir sigurinn hafa ákveðið að auka við hraðann þegar um átta kílómetrar voru eftir.

„Þegar ég sá að það var enginn annar að bæta í hraðann þá ákvað ég að ég skyldi gera það. Þegar ein og hálf míla (2,4 kílómetrar) var eftir þá gat ég séð fremsta mann og þegar það voru 800 metrar eftir hugsaði ég með mér: „Ég næ honum.““

Kamau mun hafa sleppt því að innbyrða vökva í hlaupinu og var gjörsamlega örmagna þegar hann kom í mark og féll strax niður.

Martin, sem eins og fyrr segir er forfallakennari en einnig hlaupaþjálfari hjá Jackson High School í Michigan, virtist hins vegar bara ferskur og eiga nóg eftir.

Besti tími Martins er frá árinu 2023 þegar hann hljóp á 2:10:45 og varð hann um leið fljótasti, þeldökki Bandaríkjamaður sögunnar til að hlaupa maraþon.

Þar til í fyrra, þegar Matt Richtman vann, hafði Bandaríkjamaður ekki unnið Los Angeles maraþonið frá árinu 1994.

Enyew Nigat frá Kenía varð í þriðja sæti í gær á 2:14:23 klukkutímum.

Í kvennaflokki vann Priscah Cherono frá Kenía á 2:25:20. Þessi 45 ára gamla hlaupakona keppti á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008, þá í 5.000 metra hlaupi, og varð í 10. sæti.

Kellyn Taylor varð í 2. sæti á 2:27:38 og Antonina Kwambai í 3. sæti á 2:28:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×